Mál númer 201203076
- 10. október 2012
Bæjarstjórn Mosfellsbæjar #590
Hér liggja fyrir endanlegar útgáfur af samningum við íþrótta- og tómstundafélög 2012 ásamt samningum um afrekssjóði.
Afgreiðsla 162. fundar íþrótta-og tómstundarnefndar, þar sem lagt er til við bæjarstjórn að samþykkja fyrirliggjandi samninga við íþrótta- og tómstundafélög. Framlagðir samningar við íþrótta- og tómstundafélög samþykktir á 590. fundi bæjarstjórnar með sjö atkvæðum.
- 27. september 2012
Íþrótta- og tómstundanefnd Mosfellsbæjar #162
Hér liggja fyrir endanlegar útgáfur af samningum við íþrótta- og tómstundafélög 2012 ásamt samningum um afrekssjóði.
Lagðir fram endanlegar útgáfur af samningum við íþrótta- og tómstundafélög árið 2012, ásamt samningum um afrekssjóði hjá hverju og einu félagi. Íþrótta- og tómstundanefnd leggur til við bæjarstjórn að samþykkja framlagða samninga.
- 14. mars 2012
Bæjarstjórn Mosfellsbæjar #576

Til máls tóku: JS og HSv.

Samstarfssamningarnir voru lagðir fram á 159. fundi íþrótta- og tómstundanefndar og starfsmönnum jafnframt falið ásamt fleiru að kynna þá. Lagt fram á 576. fundi bæjarstjórnar.

- 8. mars 2012
Íþrótta- og tómstundanefnd Mosfellsbæjar #159
Samstarfssamningar lagðir fram. Nefndin felur starfsmönnum nefndarinnar að kynna samningana með þeim breytingum sem fram komu á fundinum. Í framhaldi af því leggja samningana fram í bæjarstjórn til samþykktar.