Mál númer 201202135
- 14. mars 2012
Bæjarstjórn Mosfellsbæjar #576
Áður á dagskrá 1064. fundar bæjarráðs þar sem óskað var umsagnar framvkæmdastjóra umhverfissviðs. Hjálögð er umsögnin.

Til máls tóku: JS, HP og JJB.

Bókun bæjarfulltrúa S lista Samfylkingar.

Greiði atkvæði gegn staðfestingu á viðauka við þjónustusamning um rekstur endurvinnslustöðva. Ég tel það út í hött að breyta fjarlægð frá heimili til endurvinnslustöðvar úr 3,5 km í 12 km. Ég tel þessa breytingu geta haft í för með sér verulega skerðingu á aðgengi heimila að endurvinnslustöðvum og þar með stríða gegn þeim markmiðum sem þjónusta endurvinnslustöðvanna byggir m.a. á. Einnig tel ég að þessi breyting geti opnað á að stöðinni í Mosfellsbæ verði lokað til sparnaðar í rekstri Sorpu.
Jónas Sigurðsson.

Bæjarfulltrúar D og V-lista taka undir þau sjónarmið bæjarfulltrúa Samfylkingarinnar um mikilvægi þess að endurvinnslustöð sé staðsett í Mosfellsbæ enda er það áréttað sérstaklega í afgreiðslu bæjarráðs í þessu máli.

Afgreiðsla 1066. fundar bæjarráðs, að heimila umhverfissviði að undirrita viðauka við þjónustusamning um rekstur endurvinnslustöðvanna o.fl., samþykkt á 576. fundi bæjarstjórnar með fimm atkvæðum gegn tveimur.

- 8. mars 2012
Bæjarráð Mosfellsbæjar #1066
Áður á dagskrá 1064. fundar bæjarráðs þar sem óskað var umsagnar framvkæmdastjóra umhverfissviðs. Hjálögð er umsögnin.
Til máls tóku: HS, JJB, HSv, JS og HP.
Samþykkt með þremur atkvæðum að heimila umhverfissviði að undirrita fyrirliggjandi viðauka við þjónustusamning Sorpu bs. og sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu um rekstur endurvinnslustöðvanna. Bæjarráð leggur einnig áherslu á mikilvægi þess að endurvinnslustöð sé staðsett innan bæjarmarka Mosfellsbæjar.
- 29. febrúar 2012
Bæjarstjórn Mosfellsbæjar #575

Afgreiðsla 1064. fundar bæjarráðs, að vísa erindinu til framkvæmdastjóra umhverfissviðs til umsagnar, samþykkt á 575. fundi bæjarstjórnar með sjö atkvæðum.

- 23. febrúar 2012
Bæjarráð Mosfellsbæjar #1064
Bæjarráð vísar þjónustusamningi SORPU bs og sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu um rekstur endurvinnslustöðva til framkvæmdastjóra umhverfissviðs til umsagnar.