Mál númer 201011093
- 15. desember 2010
Bæjarstjórn Mosfellsbæjar #548
Verið er að leggja lokahönd á fylgiskjöl með þessu erindi og fara þau á fundargáttina strax að svo búnu og ekki síðar en í fyrramálið.

Á 1008. fundi bæjarráðs Mosfellsbæjar var svohljóðandi bókun samþykkt samhljóða.

Bæjarráð Mosfellsbæjar samþykkir hér með að taka lán hjá Lánasjóði sveitarfélaga ohf. að fjárhæð 350.000.000 kr. til 14 ára, í samræmi við lánssamning sem liggur fyrir fundinum. Til tryggingar láninu standa tekjur sveitarfélagsins, sbr. heimild í 3. mgr. 73. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 45/1998. Er lánið tekið til fjármögnunar framkvæmda við skólabyggingar sveitarfélagsins sbr. 3. gr. laga um stofnun opinbers hlutafélags um Lánasjóð sveitarfélaga nr. 150/2006.
Jafnframt er Haraldi Sverrissyni, bæjarstjóra, kt. 141261-7119, veitt fullt og ótakmarkað umboð til þess f.h. Mosfellsbæjar að undirrita lánssamning við Lánasjóð sveitarfélaga ohf. sbr. framangreint, sem og til þess að móttaka, undirrita og gefa út, og afhenda hvers kyns skjöl, fyrirmæli og tilkynningar, sem tengjast lántöku þessari.

Ofangreind afgreiðsla 1008. fundar bæjarráðs, um lántöku hjá Lánasjóði sveitarfélaga ohf., samþykkt með sjö atkvæðum.

- 9. desember 2010
Bæjarráð Mosfellsbæjar #1008
Verið er að leggja lokahönd á fylgiskjöl með þessu erindi og fara þau á fundargáttina strax að svo búnu og ekki síðar en í fyrramálið.
Til máls tóku: BH, PJL, JS, JJB og HSv.
Svohljóðandi bókun var lögð fram.
Bæjarráð Mosfellsbæjar samþykkir hér með að taka lán hjá Lánasjóði sveitarfélaga ohf. að fjárhæð 350.000.000 kr. til 14 ára, í samræmi við lánssamning sem liggur fyrir fundinum. Til tryggingar láninu standa tekjur sveitarfélagsins, sbr. heimild í 3. mgr. 73. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 45/1998. Er lánið tekið til fjármögnunar framkvæmda við skólabyggingar sveitarfélagsins sbr. 3. gr. laga um stofnun opinbers hlutafélags um Lánasjóð sveitarfélaga nr. 150/2006.
Jafnframt er Haraldi Sverrissyni, bæjarstjóra, kt. 141261-7119, veitt fullt og ótakmarkað umboð til þess f.h. Mosfellsbæjar að undirrita lánssamning við Lánasjóð sveitarfélaga ohf. sbr. framangreint, sem og til þess að móttaka, undirrita og gefa út, og afhenda hvers kyns skjöl, fyrirmæli og tilkynningar, sem tengjast lántöku þessari.
Samþykkt með þremur atkvæðum.
- 17. nóvember 2010
Bæjarstjórn Mosfellsbæjar #546
Afgreiðsla 1004. fundar bæjarráðs samþykkt á 546. fundi bæjarstjórnar með sjö atkvæðum.
- 11. nóvember 2010
Bæjarráð Mosfellsbæjar #1004
Á fundinn mætti undir þessum dagskrárlið Pétur J. Lockton fjármálastjóri.
Til máls tóku: HS, PJL og JJB.
Samþykkt með þremur atkvæðum að heimila fjármálastjóra að undirbúa endurfjármögnun í samræmi við minnisblað þar um.