Mál númer 201006197
- 25. ágúst 2010
Bæjarstjórn Mosfellsbæjar #540
Farið yfir innsendar tilnefningar til umhverfisviðurkenninga Mosfellsbæjar 2010 fyrir íbúagötur og fyrirtæki.
<DIV>Afgreiðsla 118. fundar umhverfisnefndar samþykkt á 540. fundi bæjarstjórnar með sjö atkvæðum.</DIV>
- 25. ágúst 2010
Bæjarstjórn Mosfellsbæjar #540
Farið yfir innsendar tilnefningar til umhverfisviðurkenninga Mosfellsbæjar 2010 fyrir húsagarða.
<DIV>Afgreiðsla 117. fundar umhverfisnefndar samþykkt á 540. fundi bæjarstjórnar með sjö atkvæðum.</DIV>
- 19. ágúst 2010
Umhverfisnefnd Mosfellsbæjar #118
Farið yfir innsendar tilnefningar til umhverfisviðurkenninga Mosfellsbæjar 2010 fyrir íbúagötur og fyrirtæki.
Til máls tóku: BBj, ÖJ, HÖG, SHP, KDH, TGG, BÁ
Farið yfir tilnefningar til umhverfisviðurkenninga Mosfellsbæjar fyrir árið 2010 fyrir fyrirtæki og fyrir íbúagötur.
Eftirtalin fyrirtæki voru tilnefnd:
Borgarplast, Völuteig 31-31a
N1, Háholti 1
Tilnefnd fyrirtæki voru heimsótt og umhverfismál þeirra skoðuð.
Umhverfisnefnd Mosfellsbæjar er sammála um að veita fyrirtækinu Borgarplast, Völuteig 31-31a umhverfisviðurkenningu Mosfellsbæjar fyrir árið 2010.
Fyrirtækið er til fyrirmyndar í umhverfismálum, er með virka umhverfisstefnu og umhverfisstjórnunarkerfi og er meðvitað um flokkun og endurnýtingu úrgangs.
Eftirtaldar íbúagötur voru tilnefndar:
Hamratangi
Svöluhöfði
Furubyggð
Grenibyggð
Tilnefndar götur voru skoðaðar og farið yfir gátlista til hliðsjónar.
Umhverfisnefnd Mosfellsbæjar er sammála um að veita Svöluhöfða umhverfisviðurkenningu Mosfellsbæjar 2010 fyrir fallegustu götuna. Heildaryfirbragð götunnar er snyrtilegt, hönnun og skipulag til fyrirmyndar og margir garðar fallegir og gróðursælir.
- 30. júní 2010
Bæjarstjórn Mosfellsbæjar #539
Lagðar fram tillögur að fyrirkomulagi umhverfisviðurkenninga Mosfellsbæjar fyrir árið 2010
<DIV>Afgreiðsla 116. fundar umhverfisnefndar, um tillögur að fyrirkomulagi umhverfisviðurkenninga Mosfellsbæjar fyrir árið 2010, samþykkt á 539. fundi bæjarstjórnar með sjö atkvæðum.</DIV>
- 24. júní 2010
Umhverfisnefnd Mosfellsbæjar #116
Lagðar fram tillögur að fyrirkomulagi umhverfisviðurkenninga Mosfellsbæjar fyrir árið 2010
Tillögur að fyrirkomulagi umhverfisviðurkenninga Mosfellsbæjar fyrir árið 2010 lagðar fram.
Til máls tóku BB, ÖJ, KDH, SP, ÓR, AMEE, BÁ, TGG.
Umhverfisnefnd er sammála framlögðu fyrirkomulagi en leggur til að veitt verði verðlaun í aðskildum flokkum með áherslu á 1) garða, 2) götur og 3) fyrirtæki.
Umhverfisstjóra er falið að útfæra endurskoðaðar verklagsreglur fyrir alla ofangreinda flokka, m.a. til að hvetja fyrirtæki til að taka upp vistvæna starfshætti.