Hoppa í meginmál
mos.is - Forsíða

19. júní 2025 kl. 07:30,
2. hæð Helgafell


Fundinn sátu

  • Halla Karen Kristjánsdóttir (HKK) formaður
  • Lovísa Jónsdóttir (LJó) varaformaður
  • Ásgeir Sveinsson (ÁS) aðalmaður
  • Anna Sigríður Guðnadóttir (ASG) aðalmaður
  • Rúnar Bragi Guðlaugsson (RBG) aðalmaður
  • Dagný Kristinsdóttir (DK) áheyrnarfulltrúi
  • Regína Ásvaldsdóttir (RÁ) bæjarstjóri
  • Þóra Margrét Hjaltested bæjarlögmaður

Fundargerð ritaði

Þóra Margrét Hjaltested bæjarlögmaður


Dagskrá fundar

Almenn erindi

  • 1. Nefnda­skip­an og þókn­an­ir nefnda- vinnu­hóp­ur kjör­inna full­trúa202504131

    Tillaga vinnuhóps um breytingu á þóknun fyrir setu í nefndum og ráðum og launum bæjarstjóra auk niðurfellingar á skipan áheyrnafulltrúa meirihluta í fastanefndum.

    Regína Ás­valds­dótt­ir vék af fundi við um­ræðu og af­greiðslu til­lögu um breyt­ingu á laun­um bæj­ar­stjóra.

    Bæj­ar­ráð sam­þykk­ir með fimm at­kvæð­um fyr­ir­liggj­andi til­lögu um að laun bæj­ar­stjóra hækki um 3,5% í stað 8,2% þann 1. júlí 2025 en eft­ir það taki laun bæj­ar­stjóra breyt­ing­um 1. janú­ar og 1. júlí ár hvert, sem taki gildi þann 1. janú­ar 2026.

    ***
    Regína Ás­valds­dótt­ir tók aft­ur sæti á fund­in­um. Þá tóku Pét­ur J. Lockton, sviðs­stjóri fjár­mála- og áhættu­stýr­ing­ar­sviðs og Anna María Ax­els­dótt­ir, verk­efna­stjóri á fjár­mála- og áhættu­stýr­ing­ar­sviði sæti á fund­in­um.

    ***
    Fund­ar­hlé hófst kl. 08:02. Fund­ur hófst aft­ur kl. 08:15.

    ***

    Bæj­ar­ráð sam­þykk­ir með fimm at­kvæð­um að vísa til bæj­ar­stjórn­ar breyt­ingu á þókn­un í nefnd­um og ráð­um þann­ig að þókn­un fyr­ir setu í nefnd­um og ráð­um verði tíma­bund­ið af­tengd þing­far­ar­kaupi við breyt­ingu þann 1. júlí 2025 og hækki um 3,5% í stað 5,6%.

    Að lok­um var sam­þykkt með fimm at­kvæð­um að skip­an áheyrna­full­trúa meiri­hluta verði felld nið­ur í fasta­nefnd­um frá 1. ág­úst 2025.

  • 2. Fjár­hags­áætlun Mos­fells­bæj­ar 2025 til 2028202401260

    Tillaga um viðauka 2 við fjárhagsáætlun Mosfellsbæjar 2025.

    Mál­inu frestað til næsta fund­ar.

    Gestir
    • Pétur J. Lockton, sviðsstjóri fjármála- og áhættustýringarsviðs
    • Anna María Axelsdóttir, verkefnastjóri á fjármála- og áhættustýringarsviði
    • 3. Rekst­ur deilda janú­ar til mars 2025202505519

      Yfirlit yfir rekstur deilda Mosfellsbæjar janúar til mars 2025.

      Mál­inu frestað til næsta fund­ar.

      • 4. Fjár­mögn­un skv. fjár­hags­áætlun 2025202501539

        Tillaga um lántöku hjá Lánasjóði sveitarfélaga.

        Bæj­ar­ráð Mos­fells­bæj­ar sam­þykk­ir með fimm at­kvæð­um að taka lán hjá Lána­sjóði sveit­ar­fé­laga. Um er að ræða lang­tíma­lán kr. 600.000.000, með loka­gjald­daga þann 20. fe­brú­ar 2039, í sam­ræmi við skil­mála sem liggja fyr­ir á fund­in­um í láns­samn­ingi nr. 2507_39.

        Bæj­ar­ráð Mos­fells­bæj­ar sam­þykk­ir að til trygg­ing­ar lán­inu (höf­uð­stól, upp­greiðslu­gjaldi auk vaxta, drátt­ar­vaxta og kostn­að­ar), standi tekj­ur sveit­ar­fé­lags­ins, sbr. heim­ild í 2. mgr. 68. gr. sveit­ar­stjórn­ar­laga nr. 138/2011, nán­ar til­tek­ið út­svar­s­tekj­ur og fram­lög til sveit­ar­fé­lags­ins úr Jöfn­un­ar­sjóði sveit­ar­fé­laga.

        Er lán­ið tek­ið til að end­ur­fjármagna af­borg­an­ir á eldri lán­um sveit­ar­fé­lags­ins hjá Lána­sjóðn­um sem fel­ur í sér að vera verk­efni sem hef­ur al­menna efna­hags­lega þýð­ingu, sbr. 3. gr. laga um stofn­un op­in­bers hluta­fé­lags um Lána­sjóð sveit­ar­fé­laga nr. 150/2006.

        Jafn­framt er Regínu Ás­valds­dótt­ur, bæj­ar­stjóra Mos­fells­bæj­ar, veitt fullt og ótak­markað um­boð til þess f.h. Mos­fells­bæj­ar að und­ir­rita láns­samn­ing við Lána­sjóð sveit­ar­fé­laga sbr. fram­an­greint, sem og til þess að móttaka, und­ir­rita og gefa út, og af­henda hvers kyns skjöl, fyr­ir­mæli og til­kynn­ing­ar, sem tengjast lán­töku þess­ari, þ.m.t. beiðni um út­borg­un láns.

        Jafn­framt sam­þykk­ir bæj­ar­ráð Mos­fells­bæj­ar með fimm at­kvæð­um að taka lán hjá Lána­sjóði sveit­ar­fé­laga. Um er að ræða lang­tíma­lán kr. 250.000.000, og höf­uð­stóls­fjár­hæð kr. 295.677.856, með loka­gjald­daga þann 5. nóv­em­ber 2055, í sam­ræmi við skil­mála sem liggja fyr­ir á fund­in­um í láns­samn­ingi nr. 2507_38.

        Bæj­ar­ráð Mos­fells­bæj­ar sam­þykk­ir að til trygg­ing­ar lán­inu (höf­uð­stól, upp­greiðslu­gjaldi auk vaxta, drátt­ar­vaxta og kostn­að­ar), standi tekj­ur sveit­ar­fé­lags­ins, sbr. heim­ild í 2. mgr. 68. gr. sveit­ar­stjórn­ar­laga nr. 138/2011, nán­ar til­tek­ið út­svar­s­tekj­ur og fram­lög til sveit­ar­fé­lags­ins úr Jöfn­un­ar­sjóði sveit­ar­fé­laga.

        Er lán­ið tek­ið til að fjár­magna end­ur­bæt­ur við leik- og grunn­skóla sem fel­ur í sér að vera verk­efni sem hef­ur al­menna efna­hags­lega þýð­ingu, sbr. 3. gr. laga um stofn­un op­in­bers hluta­fé­lags um Lána­sjóð sveit­ar­fé­laga nr. 150/2006.

        Jafn­framt er Regínu Ás­valds­dótt­ur, bæj­ar­stjóra Mos­fells­bæj­ar, veitt fullt og ótak­markað um­boð til þess f.h. Mos­fells­bæj­ar að und­ir­rita láns­samn­ing við Lána­sjóð sveit­ar­fé­laga sbr. fram­an­greint, sem og til þess að móttaka, und­ir­rita og gefa út, og af­henda hvers kyns skjöl, fyr­ir­mæli og til­kynn­ing­ar, sem tengjast lán­töku þess­ari, þ.m.t. beiðni um út­borg­un láns.

        Gestir
        • Anna María Axelsdóttir, verkefnastjóri á fjármála- og áhættustýringarsviði
        • Pétur J. Lockton, sviðsstjóri fjármála- og áhættustýringarsviðs
      • 5. Heit­ur pott­ur með rampi fyr­ir alla í Lága­fells­laug202411616

        Lagt er til að bæjarráð heimili útboð vegna uppbyggingar á heitum potti með rampi fyrir alla á sundlaugarsvæði Lágfellslaugar.

        Bæj­ar­ráð sam­þykk­ir með fimm at­kvæð­um fyr­ir­liggj­andi til­lögu um út­boð á upp­bygg­ingu á nýj­um heit­um potti með að­gengi fyr­ir alla á sund­laug­ar­svæði Lága­fells­laug­ar.

        Gestir
        • Jóhanna B. Hansen, sviðsstjóri umhverfissviðs
        • Arnar Jónsson, sviðsstjóri menningar-, íþrótta- og lýðheilsusviðs
        • 6. End­ur­skoð­un á grunni álagn­ing­ar á fast­eign­ir202506315

          Erindi frá félagi atvinnurekenda þar sem sveitarfélög eru hvött til þess að lækka álagningarprósentu fasteignaskatta og halda sköttum á atvinnuhúsnæði óbreyttu milli ár.

          Bæj­ar­ráð sam­þykk­ir með fimm at­kvæð­um að vísa er­ind­inu til um­fjöll­un­ar við af­greiðslu fjár­hags­áætl­un­ar fyr­ir árið 2026.

        • 7. Hvetj­um til sum­arstarfa fyr­ir 16-17 ára ung­menni í sveit­ar­fé­lög­um202506294

          Hvatning til bæjarstjóra og velferðar- og fræðslusviðs, frá aðgerðahópi Ríkislögreglustjóra vegna ofbeldis meðal og gegn börnum, þess efnis að bjóða ungmennum upp á sumarstörf sumarið 2025.

          Bæj­ar­stjóri veitti upp­lýs­ing­ar um stöðu mála í Mos­fells­bæ. Mos­fells­bær býð­ur 16-17 ára ung­menn­um sum­ar­vinnu og eru 33 ung­menni á þeim aldri í vinnu hjá sveit­ar­fé­lag­inu sem eru þau ung­menni sem ósk­uðu eft­ir vinnu fyr­ir lok um­sókn­ar­frests.

        Fleira var ekki gert. Fundi slitið kl. 08:57