Mál númer 202506294
- 19. júní 2025
Bæjarráð Mosfellsbæjar #1672
Hvatning til bæjarstjóra og velferðar- og fræðslusviðs, frá aðgerðahópi Ríkislögreglustjóra vegna ofbeldis meðal og gegn börnum, þess efnis að bjóða ungmennum upp á sumarstörf sumarið 2025.
Bæjarstjóri veitti upplýsingar um stöðu mála í Mosfellsbæ. Mosfellsbær býður 16-17 ára ungmennum sumarvinnu og eru 33 ungmenni á þeim aldri í vinnu hjá sveitarfélaginu sem eru þau ungmenni sem óskuðu eftir vinnu fyrir lok umsóknarfrests.