Mál númer 202111492
- 8. desember 2021
Bæjarstjórn Mosfellsbæjar #795
Erindi Verkís ehf., f.h. Veitna, þar sem óskað er heimildar til að leggja rafstreng í landi Mosfellsbæjar, Úr Leirvogstungulandi, L123707.
Afgreiðsla 1513. fundar bæjarráðs samþykkt á 795. fundi bæjarstjórnar með níu atkvæðum.
- 8. desember 2021
Bæjarstjórn Mosfellsbæjar #795
Borist hefur erindi frá Verkís, f.h. Veitna ohf., dags. 18.11.2021, með ósk um framkvæmdaleyfi fyrir plægingu rafstrengja frá Skálafelli að Hrísbrú í samræmi við gögn.
Afgreiðsla 555. fundar skipulagsnefndar samþykkt á 795. fundi bæjarstjórnar með níu atkvæðum.
- 3. desember 2021
Skipulagsnefnd Mosfellsbæjar #555
Borist hefur erindi frá Verkís, f.h. Veitna ohf., dags. 18.11.2021, með ósk um framkvæmdaleyfi fyrir plægingu rafstrengja frá Skálafelli að Hrísbrú í samræmi við gögn.
Skipulagsfulltrúa er falið að gefa út framkvæmdaleyfi í samræmi við 13. og 15. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 skv. reglugerð um framkvæmdaleyfi nr. 772/2012, á grunni aðalskipulags Mosfellsbæjar.
- 2. desember 2021
Bæjarráð Mosfellsbæjar #1513
Erindi Verkís ehf., f.h. Veitna, þar sem óskað er heimildar til að leggja rafstreng í landi Mosfellsbæjar, Úr Leirvogstungulandi, L123707.
Bæjarráð samþykkir með þremur atkvæðum að heimila Veitum ohf. að leggja streng um land Úr Leirvogstungulandi, L123707 í samræmi við fyrirliggjandi samkomulag, með fyrirvara um jákvæða afgreiðslu skipulagsnefndar. Bæjarstjóra er falið að undirrita samkomulagið fyrir hönd Mosfellsbæjar að fenginni jákvæðri afgreiðslu skipulagsnefndar.