Mál númer 201907152
- 21. ágúst 2019
Bæjarstjórn Mosfellsbæjar #743
Athugasemdir lóðarhafa að Bjarkarholti 1 við fyrirhugaða staðsetningu dreifistöðvar Veitna.
Afgreiðsla 1406. bæjarráðs lögð fram til kynningar á 743. fundi bæjarstjórnar.
- 21. ágúst 2019
Bæjarstjórn Mosfellsbæjar #743
Lagt fram minnisblað skipulagsfulltrúa.
Bæjarfulltrúi Hafsteinn Pálsson víkur sæti undir afgreiðslu liða 1 og 2 vegna vanhæfis.
Afgreiðsla 1408. fundar bæjarráðs lögð fram til kynningar á 743. fundi bæjarstjórnar. - 15. ágúst 2019
Bæjarráð Mosfellsbæjar #1408
Lagt fram minnisblað skipulagsfulltrúa.
Bæjarráð synjar því með 3 atkvæðum að færa staðsetningu dreifistöðvarinnar með vísan til fyrirliggjandi minnisblaðs. Skipulagsfulltrúa er falið að svara erindinu.
- 11. júlí 2019
Bæjarráð Mosfellsbæjar #1406
Athugasemdir lóðarhafa að Bjarkarholti 1 við fyrirhugaða staðsetningu dreifistöðvar Veitna.
Samþykkt með 3 atkvæðum að vísa erindinu til umsagnar skipulagsfulltrúa.