Hoppa í meginmál
mos.is - Forsíða

Mál númer 201804072

  • 20. september 2018

    Fjöl­skyldu­nefnd Mos­fells­bæj­ar #272

    Lands­fund­ur jafn­rétt­is­mála og jafn­rétt­is­dag­ur Mos­fells­bæj­ar 2018.

    Hanna Guð­laugs­dótt­ir mannauðs­stjóri mætti til fund­ar­ins og gerði grein fyr­ir minn­is­blaði vegna til­nefn­ing­ar til jafn­réttisvið­ur­kenn­ing­ar Mos­fells­bæj­ar.
    Á fund­in­um var fjallað um til­lögu mannauðs­stjóra og jafn­rétt­is­full­trúa að veita Afltaki ehf. jafn­réttisvið­ur­kenn­ingu Mos­fells­bæj­ar 2018, en eina til­nefn­ing­in sem kom fram eft­ir aug­lýs­ingu var um það fyr­ir­tæki. Ákveð­ið var að veita fyr­ir­tæk­inu jafn­réttisvið­ur­kenn­ing­una fyr­ir við­leitni til að jafna kynja­hlut­föll í störf­um sem eru yf­ir­leitt að­eins unn­in af körl­um. Geng­ið var til at­vkæða um til­lög­una og hún sam­þykkt með þrem­ur at­kvæð­um meiri­hluta.

    Bók­un C og S lista ásamt áheyrna­full­trú­um nefnd­ar­inn­ar:
    Minni­hluti C og S lista ásamt áheyrn­ar­full­trú­um nefnd­ar­inn­ar hörm­um vinnu­brögð meiri­hluta D og V lista fjöl­skyldu­nefnd­ar við af­greiðslu til­nefn­ing­ar til jafn­réttisvið­ur­kenn­ing­ar Mos­fells­bæj­ar 2018. Æski­legt hefði ver­ið að gefa ný­kjör­inni fjöl­skyldu­nefnd ríf­legri tíma til að vinna fag­lega að mál­inu.

    Bók­un D og V lista.
    Því er al­far­ið hafn­að að vinnu­brögð­um við af­greiðslu til­nefn­ing­ar­inn­ar hafi ver­ið áfátt en var við af­greiðsl­una fylgt sama fram­gangs­máta og hef­ur ver­ið gert áður í fjöl­skyldu­nefnd. Þá voru all­ar upp­lýs­ing­ar fyr­ir­liggj­andi sem þurfti til að af­greiða mál­ið svo og til­laga starfs­manna sem fara með þenn­an mála­flokk hjá sveit­ar­fé­lag­inu.

    • 6. september 2018

      Bæj­ar­ráð Mos­fells­bæj­ar #1365

      Lands­fund­ur sveit­ar­fé­laga í jafn­rétt­is­mál­um, mál­þing og jafn­rétt­is­dag­ur Mos­fells­bæj­ar 2018

      Lagt fram.

      • 17. apríl 2018

        Fjöl­skyldu­nefnd Mos­fells­bæj­ar #267

        Drög að dagskrá lands­fund­ar jafn­rétt­is­nefnda og jafn­rétt­is­dags Mos­fells­bæj­ar.

        Mannauðs­stjóri kynn­ir drög að dagskrá lands­fund­ar jafn­rétt­is­nefnda og jafn­rétt­is­dags Mos­fells­bæj­ar. Fjöl­skyldu­nefnd lýs­ir yfir ánægju með dag­skrár­drög­in og sam­þykk­ir að unn­ið verði áfram að mót­un dag­skrár­inn­ar í sam­ræmi við um­fjöllun fund­ar­ins. Í ljósi efn­is á dagskrá legg­ur fjöl­skyldu­nefnd áherslu á að það verði kynnt for­svars­mönn­um fræðslu­mála á dag­skránni.