Mál númer 201605291
- 31. ágúst 2016
Bæjarstjórn Mosfellsbæjar #677
Tillaga að breytingu á deiliskipulagi var auglýst 20. júní 2016 með athugasemdafresti til 1. ágúst 2016. Engin athugasemd barst.
Afgreiðsla 9. afgreiðslufundar skipulagsfulltrúa lögð fram til kynningar á 677. fundi bæjarstjórnar.
- 8. júní 2016
Bæjarstjórn Mosfellsbæjar #673
F.h. landeiganda Sigurdórs Sigurðssonar óskar Kári Eiríksson arkitekt eftir breytingu á deiliskipulagi þannig að markaður verði byggingareitur fyrir nýtt íbúðarhús norðan núverandi húss, sbr. meðfylgjandi tillöguuppdrátt.
Afgreiðsla 414. fundar skipulagsnefndar samþykkt á 673. fundi bæjarstjórnar með níu atkvæðum.
- 31. maí 2016
Skipulagsnefnd Mosfellsbæjar #414
F.h. landeiganda Sigurdórs Sigurðssonar óskar Kári Eiríksson arkitekt eftir breytingu á deiliskipulagi þannig að markaður verði byggingareitur fyrir nýtt íbúðarhús norðan núverandi húss, sbr. meðfylgjandi tillöguuppdrátt.
Nefndin samþykkir tillöguna til auglýsingar skv. 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga með þeim breytingum sem ræddar voru á fundinum.