18. júní 2025 kl. 16:30,
2. hæð Helgafell
Fundinn sátu
- Aldís Stefánsdóttir (ASt) formaður
- Hrafnhildur Gísladóttir (HG) varaformaður
- Elín Árnadóttir (EÁ) aðalmaður
- Elín María Jónsdóttir (EMJ) aðalmaður
- Ásgeir Sveinsson (ÁS) aðalmaður
- Dagný Kristinsdóttir (DK) áheyrnarfulltrúi
- Elín Anna Gísladóttir (EAG) áheyrnarfulltrúi
- Hlín Ólafsdóttir áheyrnarfulltrúi
- Freyja Leópoldsdóttir (FL) áheyrnarfulltrúi
- Guðrún Þórhildur Elfarsdóttir (GÞE) varamaður
- Viktoría Unnur Viktorsdóttir áheyrnarfulltrúi
- Þrúður Hjelm fræðslu- og frístundasvið
- Ólöf Kristín Sívertsen sviðsstjóri fræðslu- og frístundasviðs
- Ágúst Frímann Jakobsson leiðtogi málefna grunnskóla
Fundargerð ritaði
Ágúst Frímann Jakobsson leiðtogi málefna grunnskóla
Dagskrá fundar
Almenn erindi
1. Framkvæmdir í skólum 2025202506399
Kynning á helstu framkvæmdum í skólum Mosfellsbæjar sumarið 2025.
Fræðslunefnd þakkar Óskari Gísla Sveinssyni frá umhverfissviði Mosfellsbæjar fyrir kynninguna.
Gestir
- Óskar Gísli Sveinsson
2. Skóladagatöl skólaársins 2026-2027202505558
Skóladagatöl leik-, grunn- og Listaskóla fyrir skólaárið 2026-2027 lögð fram til staðfestingar.
Fræðslunefnd staðfestir framlögð skóladagatöl með 5 atkvæðum.
3. Verklagsreglur varðandi mönnun leikskóla202506356
Verklagsreglur sem fela í sér að tekið verði upp svokallað álagsmat til að styðja við ákvarðanatöku vegna viðbragða við fáliðun í starfsmannahóp leikskóla. Um er að ræða kynningu á útfærslu á samþykkt bæjarráðs frá 1631. fundi þar sem fræðslu- og frístundasviði var falið að skoða innri þætti og skipulag með það að leiðarljósi að efla starfsumhverfi leikskólans.
Fræðslunefnd tekur undir mikilvægi þess að tekið verði upp miðlægt álagsmat til að styðja við ákvarðanatöku þegar nauðsynlegt er að bregðast við fáliðun í starfsemi leikskóla.
4. Afsláttur af leikskólagjöldum fyrir starfsfólk leikskóla202311239
Minnisblað leiðtoga leikskólamála varðandi fyrirkomulag afsláttar af dvalargjöldum og forgang að leikskólaplássum fyrir starfsfólk leikskóla. Um er að ræða kynningu á útfærslu samþykktar frá 1631. fundi bæjarráðs varðandi þessi atriði.
Lagt fram og kynnt fyrirkomulag afsláttar af dvalargjöldum og forgang að leikskólaplássum fyrir starfsfólk leikskóla.
5. Mat á starfi grunnskóla202506371
Kynning á niðurstöðum kannana skólaársins 24-25 og áformum um innra og ytra mat grunnskólanna frá og með næsta skóláári.
Fræðslunefnd þakkar kynningu á niðurstöðum Lesfimi og Skólapúlsins og fagnar jafnframt aukinni áherslu á innra mat grunnskólanna. Nefndin ítrekar mikilvægi þess að allar niðurstöður séu nýttar til umbóta í skólastarfi með hagsmuni nemenda að leiðarljósi.
6. Ráðning leikskólastjóra leikskólans Huldubergs202505016
Upplýst um ráðningu nýs leikskólastjóra í leikskólanum Huldubergi.
Fræðslunefnd óskar Jónu Rún Gísladóttur til hamingju með stöðu leikskólastjóra á Huldubergi og óskar henni velfarnaðar í starfi.
7. Tillaga frá D-lista - þátttaka ungmenna í leikskólastarfi202505071
Mál frá 442. fundi sem vísað var til umsagnar hjá sviðsstjóra, leiðtoga í leikskólamálum og leikskólastjórum.
Í ljósi jákvæðra umsagna frá stjórnendum leikskóla og sviðsstjóra fræðslu- og frístundasviðs er lagt til að vorið 2026 verði umsækjendum um Vinnuskólann gefinn kostur á að sækja um að starfa á leikskólum bæjarins. Málinu vísað til tómstunda- og forvarnarfulltrúa sem hefur umsjón með starfi Vinnuskólans til útfærslu og framkvæmdar. Samþykkt með 5 atkvæðum.