Hoppa í meginmál
mos.is - Forsíða

29. ágúst 2024 kl. 10:00,
í Kjarna


Fundinn sátu

  • Kristinn Pálsson skipulagsfulltrúi

Fundargerð ritaði

Kristinn Pálsson skipulagsfulltrúi


Dagskrá fundar

Almenn erindi

  • 1. Byggð­ar­holt 47 - stækk­un húss202402262

    Skipulagsnefnd samþykkti á 610. fundi sínum að grenndarkynna umsókn um byggingarleyfi og byggingaráform um viðbyggingu húss að Byggðarholti 47. Um er að ræða 54,8 m² stækkun húss til vesturs, um 2 m frá Álfholti. Teikningar sýna steinsteypta stofu, herbergi og vinnuherbergi. Tillaga að breytingu var kynnt og gögn höfð aðgengileg á vef sveitarfélagsins, www.mos.is, og auglýst með kynningarbréfi. Athugasemdafrestur var frá 10.07.2024 til og með 11.08.2024. Engar athugasemdir bárust.

    Þar sem eng­ar at­huga­semd­ir bár­ust við kynnt áform, með vís­an í 44. gr. skipu­lagslaga nr. 123/2010, 5.9.4. gr. skipulagsreglugerðar nr. 90/2013 og af­greiðslu­heim­ild­ir skipu­lags­full­trúa í sam­þykkt­um um stjórn Mos­fells­bæj­ar, sam­þykk­ir skipu­lags­full­trúi áformin og er bygg­ing­ar­full­trúa heim­ilt að af­greiða er­indi og gefa út bygg­ing­ar­leyfi þeg­ar að um­sókn sam­ræm­ist lög­um um mann­virki nr. 160/2010, bygg­ing­ar­reglu­gerð nr. 112/2012 og kynnt­um gögn­um.

  • 2. Hamra­brekk­ur 4 - Um­sókn um bygg­ing­ar­heim­ild - Flokk­ur 1,202401588

    Skipulagsfulltrúi samþykkti á 80. fundi sínum að grenndarkynna að nýju breytta umsókn um byggingarleyfi og byggingaráform vegna nýbyggingar frístundahúss að Hamrabrekkum 4. Ný tillagan var kynnt með kynningarbréfi auk gagna, sem send voru til þinglýstra eigenda lóða að Hamrabrekkum 3, 4, 5 og 6. Athugasemdafrestur var frá 24.07.2024 til og með 25.08.2024. Hjálagðar eru undirskriftir og samþykki hagaðila grenndarkynningar fyrir breyttum byggingaráformum.

    Þar sem fyr­ir ligg­ur skrif­legt sam­þykki allra hag­að­ila grennd­arkynn­ing­ar, með vís­an í 3. mgr. 44. gr. skipu­lagslaga nr. 123/2010, 5.9.4. gr. skipu­lags­reglu­gerð­ar nr. 90/2013 og af­greiðslu­heim­ild­ir skipu­lags­full­trúa í sam­þykkt­um um stjórn Mos­fells­bæj­ar, sam­þykk­ir skipu­lags­full­trúi áformin og er bygg­ing­ar­full­trúa heim­ilt að af­greiða er­indi og gefa út bygg­ing­ar­leyfi þeg­ar að um­sókn sam­ræm­ist lög­um um mann­virki nr. 160/2010, bygg­ing­ar­reglu­gerð nr. 112/2012 og kynnt­um gögn­um.

  • 3. Hraðastað­ir 6 - Um­sókn um bygg­ing­ar­leyfi202407101

    Borist hefur umsókn um byggingarleyfi frá Bjarna Bjarnasyni vegna íveruhúss innan 5.068 m² lóðar að Hraðastöðum 6. Um er að ræða stakstætt 47,9 m² timburhús til íbúðar, í samræmi við fundargerð byggingarfulltrúa og gögn. Umsókn byggir á skráningu mannvirkis þar sem hús hefur þegar verið byggt. Erindinu var vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa á 528. afgreiðslufundi byggingarfulltrúa þar sem ekki er í gildi deiliskipulag fyrir lóðina.

    Þar sem að ekki er í gildi deili­skipu­lag sem upp­fyll­ir ákvæði skipu­lagslaga nr. 123/2010 og skipu­lags­reglu­gerð­ar nr. 90/2013 sam­þykk­ir skipu­lags­full­trúi, í sam­ræmi við af­greiðslu­heim­ild­ir skipu­lags­full­trúa í sam­þykkt­um um stjórn Mos­fells­bæj­ar, að bygg­ing­ar­leyf­is­um­sókn­in skuli grennd­arkynnt skv. 1. og 2. mgr. 44. gr. skipu­lagslaga á grundvelli ákvæða aðalskipulags Mosfellsbæjar um Mosfellsdal. Fyrirliggjandi gögn skulu send aðliggjandi hagaðilum og þinglýstum eigendum fasteigna og lóða að Hraðastöðum 3, 6, Hraðastaðavegi 9, 11 og Túnfæti L123672 til kynningar og athugasemda. Auk þess verða gögn aðgengileg á vef Mosfellsbæjar, www.mos.is.

Fleira var ekki gert. Fundi slitið kl. 10:30