Hoppa í meginmál
mos.is - Forsíða

24. október 2024 kl. 07:30,
2. hæð Helgafell


Fundinn sátu

  • Halla Karen Kristjánsdóttir (HKK) formaður
  • Valdimar Birgisson (VBi) varamaður
  • Ásgeir Sveinsson (ÁS) aðalmaður
  • Anna Sigríður Guðnadóttir (ASG) aðalmaður
  • Rúnar Bragi Guðlaugsson (RBG) aðalmaður
  • Dagný Kristinsdóttir (DK) áheyrnarfulltrúi
  • Regína Ásvaldsdóttir (RÁ) bæjarstjóri
  • Þóra Margrét Hjaltested bæjarlögmaður

Fundargerð ritaði

Gerður Jóhanna Jóhannsdóttir upplýsinga- og skjalastjóri

Í upp­hafi fund­ar var sam­þykkt með fimm at­kvæð­um að taka nýtt mál á dagskrá fund­ar­ins sem verð­ur lið­ur nr. 4 á dagskrá fund­ar­ins.


Dagskrá fundar

Almenn erindi

  • 1. Grennd­ar­stöðv­ar í Mos­fells­bæ202302133

    Lögð fyrir bæjarráð tillaga um umhirðu grenndarstöðva

    Bæj­ar­ráð sam­þykk­ir með fimm at­kvæð­um fyr­ir­liggj­andi til­lögu um um­hirðu grennd­ar­stöðva.

    • 2. Varð­veisla gagna á ra­f­rænu formi202410355

      Lagt er til að varðveisla gagna á rafrænu formi verði að meginreglu hjá Mosfellsbæ og stofnunum bæjarins.

      Bæj­ar­ráð sam­þykk­ir með fimm at­kvæð­um fyr­ir­liggj­andi til­lögu um fyr­ir­komulag varð­veislu gagna hjá Mos­fells­bæ.

    • 3. Með­ferð­ar­deild fyr­ir börn í Far­sæld­ar­túni í Mos­fells­bæ202410416

      Umræða og upplýsingagjöf í tengslum við opnun meðferðardeildar fyrir börn í húsnæði Farsældartúns í Mosfellsbæ að beiðni Sjálfstæðisflokks.

      Bæj­ar­stjóri veitti upp­lýs­ing­ar um fyr­ir­hug­aða opn­un með­ferð­ar­deild­ar fyr­ir börn í hús­næði Far­sæld­ar­túns í Mos­fells­bæ og um­ræða fór fram um mál­ið.

      Lögð er fram eft­ir­far­andi fyr­ir­spurn frá bæj­ar­ráðs­full­trú­um D lista.

      Þess er óskað að upp­lýst verði um eft­ir­far­andi þætti:
      1. Upp­lýst verði um stöð­una á Skála­túns­reitn­um.
      2. Upp­lýst verði hve lengi þetta tíma­bundna úr­ræði eigi að starfa, hvort von sé á að fleiri dag­vist­un­ar­stofn­an­ir eða stofn­an­ir þar sem börn og ung­ling­ar dvelja til lengri tíma flytji í Skála­tún áður en deili­skipu­lag og fram­kvæmd­ir hafa ver­ið rædd­ar og sam­þykkt­ar í stjórn­sýsl­unni hjá Mos­fells­bæ.
      3. Einn­ig er beð­ið um að upp­lýst verði hvort það sé búið að ákveða að með­ferð­ar­heim­il­ið Stuðl­ar eigi að flytja í heild sinni í Skáltún eins og mennta- og barna­mála­ráð­herra hef­ur ít­rekað full­yrt.

      Bæj­ar­ráð sam­þykk­ir með fimm at­kvæð­um að vísa fyr­ir­spurn­inni til bæj­ar­stjóra.

      ***

      Bók­un D lista:
      Það kem­ur mjög á óvart að búið sé að ákveða að hluti af starf­semi með­ferð­ar­heim­il­is Stuðla sé að flytja í nú­ver­andi hús­næði í Skála­túni.
      Þau áform höfðu ekki ver­ið rædd eða kynnt í bæj­ar­ráði, bæj­ar­stjórn eða í Vel­ferð­ar­nefnd Mos­fells­bæj­ar.

      Í sjón­varps­frétt­um sunnu­dag­inn 20. októ­ber síð­ast­lið­inn full­yrti mennta- og barna­mála­ráð­herra að öll starf­semi Stuðla myndi flytja í Skála­tún og það úr­ræði sem sam­þykkt hef­ur ver­ið að opna þar á næstu dög­um sé fyrsta skref­ið í þeirri veg­ferð.

      Full­trú­ar D-lista í bæj­ar­ráði Mos­fells­bæj­ar lýsa yfir mikl­um von­brigð­um með upp­lýs­inga­leysi meiri­hlut­ans í þessu máli, því hér er um að ræða veiga­mikla breyt­ingu á nú­ver­andi starf­semi að Skála­túni.

      Bók­un B, C og S lista.
      Eins og fram hef­ur kom­ið í op­in­berri um­ræðu þá hef­ur með­ferð­ar­þjón­ustu við börn og ung­menni á Ís­landi ver­ið ábóta­vant mörg und­an­farin ár. Ým­iss kon­ar úr­ræða er þörf og áform um upp­bygg­ingu í Far­sæld­ar­túni vekja von­ir um að rík­is­vald­ið taki vand­ann al­var­lega og úr­bóta sé að vænta.

      Sveit­ar­fé­lög­in í land­inu hafa ít­rekað kallað eft­ir að­gerð­um þeg­ar kem­ur að bú­setu fyr­ir börn með fjöl­þætt­an vanda og með­ferð­ar­heim­ili. Á und­an­förn­um árum hef­ur með­ferð­ar­heim­il­um fækkað markviss en í kring­um alda­mót­in voru þau 10 tals­ins. Sú stefna, að fækka með­ferð­ar­heim­il­um, hef­ur leitt til þess að auk­inn kostn­að­ur hef­ur flust yfir á sveit­ar­fé­lög­in sem hafa ver­ið að greiða fyr­ir dýr úr­ræði á veg­um einka­að­ila. Auk þess hef­ur dýr­mæt sér­þekk­ing í mála­flokkn­um tap­ast.

      Stað­an í ís­lensku sam­fé­lagi ein­mitt núna er sú að sár­lega skort­ir með­ferð­ar­deild fyr­ir 4-5 börn. Þar er um að ræða opið úr­ræði fyr­ir skjól­stæð­inga, þ.e. ekki neyð­ar­vist­un. Stjórn Far­sæld­ar­túns sam­þykkti að Barna- og fjöl­skyldu­stofa fengi af­not af einu hús­anna í Skála­túni und­ir tíma­bund­ið úr­ræði.

      Sú ákvörð­un er í fullu sam­ræmi við þann samn­ing sem gerð­ur var árið 2023 á milli sjálf­seigna­stofn­un­ar­inn­ar Skála­túns og rík­is­ins um upp­bygg­ingu á þjón­ustu fyr­ir börn og ung­menni á Skála­túni. IOGT sem rak Skála­tún ánafn­aði fast­eign­um og lóð­um Skála­túns til sjálf­seign­ar­stofn­un­ar­inn­ar Far­sæld­ar­túns svo byggja mætti upp starf­semi í þágu barna og fjöl­skyldna þeirra.

      Þá var einn­ig und­ir­rit­uð vilja­yf­ir­lýs­ing á milli mennta- og barna­mála­ráðu­neyt­is og Mos­fells­bæj­ar um að stofn­an­ir rík­is­ins sem sinna mál­efn­um barna, sam­tök sem vinna í þágu barna og þjón­ustu­að­il­ar barna, verði stað­sett í Far­sæld­ar­túni (landi Skála­túns) í nokk­urs kon­ar mið­stöð barna auk þess að byggð yrði upp þjón­usta við börn með fjöl­þætt­an vanda.

      Börn­in sem njóta munu þjón­ust­unn­ar koma víða að, með­al ann­ars frá Mos­fells­bæ.

      Upp­bygg­ing í Far­sæld­ar­túni mun að sjálf­sögðu lúta skipu­lags­valdi Mos­fells­bæj­ar.

      Eins og all­ir í bæj­ar­ráði eiga að vita þá er skýrt í samn­ing­um sem bæj­ar­stjórn öll sam­þykkti í maí 2023 að í Far­sæld­ar­túni myndi með­ferð­ar­úr­ræði fyr­ir börn með fjöl­þætt­an vanda verða starf­rækt. Ásamt ann­arri starf­semi í þágu far­sæld­ar barna.

      • 4. Við­ur­kenn­ing á bóta­skyldu vegna hag­nýt­ing­ar á grunn­vatni í Lax­nes­dýj­um202012139

        Tillaga um afbrigði Lagður fram til kynningar dómur héraðsdóms í máli Þórarins Jónassonar á hendur Mosfellsbæ er varðar viðurkenningu á bótaskyldu vegna hagnýtingar á grunnvatni í Laxnesdýjum. Mosfellsbær var sýknaður af kröfum í málinu.

        Dóm­ur hér­aðs­dóms lagð­ur fram og kynnt­ur.

      Fleira var ekki gert. Fundi slitið kl. 09:45