12. desember 2023 kl. 16:33,
2. hæð Helgafell
Fundinn sátu
- Sævar Birgisson (SB) formaður
- Jóna Guðrún Kristinsdóttir (JGK) varaformaður
- Davíð Örn Guðnason (DÖG) aðalmaður
- Ólafur Ingi Óskarsson (ÓIÓ) aðalmaður
- Hilmar Stefánsson (HS) aðalmaður
- Rúnar Már Jónatansson (RMJ) áheyrnarfulltrúi
- Ólafía Dögg Ásgeirsdóttir (ÓDÁ) skrifstofa umbóta og þróunar
- Arnar Jónsson forstöðumaður þjónustu- og samskiptadeildar
Fundargerð ritaði
Arnar Jónsson sviðsstjóri menningar-, íþrótta- og lýðheilsusviðs
Í upphafi fundar var samþykkt að dagskrárliðir 1 og 2 í dagskrá fundarins verði sameiginlegir með menningar-og lýðræðisnefnd.
Dagskrá fundar
Almenn erindi
1. Markaðsstofa höfuðborgarsvæðisins 2024-2025202309334
Inga Hlín Pálsdóttir framkvæmdastjóri markaðsstofu höfuðborgarborgarsvæðis kynnir starfssemi stofunnar og áfangastaðaáætlun höfuðborgarsvæðisins 2023-2026.
Atvinnu- og nýsköpunarnefnd og menningar- og lýðræðisnefnd þakka Ingu Hlín Pálsdóttur framkvæmdastjóra Markaðsstofu höfuðborgarsvæðisins fyrir kynningu á starfsemi Markaðsstofunnar. Nefndirnar fagna stofnun Markaðsstofunnar og gerð áfangastaðáætlunar og telja að starfsemin verði til þess að efla höfuðborgarsvæðið í heild sem áfangastað og sé til þess fallin að nýta enn betur fjármuni, þekkingu og reynslu fyrri ára.
Gestir
- Inga Hlín Pálsdóttir
2. Áfangastaðaáætlun höfuðborgarsvæðisins - verkefni Mosfellsbæjar 2024202312146
Fram fer umræða atvinnu- og nýsköpunarnefndar og menningar- og lýðræðisnefndar um ný verkefni Mosfellsbæjar í áfangastaðaáætlun höfuðborgarsvæðisins.
Fram fóru umræður um endurskoðun verkefna Mosfellsbæjar í áfangastaðaáætlun höfuðborgarsvæðisins 2024. Starfsmanni atvinnu- og nýsköpunarnefndar falið að vinna að mótun tillagna um breytt verkefni meðal annars á grunni þeirra umræðna sem fram fóru á fundinum.
3. Innleiðing atvinnustefnu202311200
Tillaga að útliti fyrir Atvinnustefnu Mosfellsbæjar
Tillaga um útlit atvinnustefnu Mosfellsbæjar samþykkt.