6. mars 2018 kl. 07:00,
2. hæð Helgafell
Fundinn sátu
- Bryndís Haraldsdóttir (BH) formaður
- Bjarki Bjarnason (BBj) varaformaður
- Gunnlaugur Johnson (GJo) áheyrnarfulltrúi
- Hilmar Stefánsson (HS) 1. varamaður
- Anna Sigríður Guðnadóttir (ASG) 1. varamaður
- Ólafur Melsted skipulagsfulltrúi
- Ásbjörn Þorvarðsson byggingarfulltrúi
- Gunnar Sigurgeir Ragnarsson umhverfissvið
Fundargerð ritaði
Ásbjörn Þorvarðarson Byggingafulltrui
Dagskrá fundar
Almenn erindi
1. Helgafellstorfan - Deiliskipulag201704194
Á 452. fundi skipulagsnefndar 5. janúar 2018 var gerð efirfarandi bókun: "Skipulagslýsing samþykkt. Skipulagsfultrúa falið að kynna hana og afla umsagna." Skipulagslýsing hefur verið send til umsagnaraðila, umsagnir hafa borist frá öllum nema Umhverfisstofnun. Borist hefur ósk frá bæjarfulltrúa íbúahreyfingar um að umhverfisnefnd Mosfellsbæjar fái skipulagslýsinguna til umsagnar.
Skipulagsnefnd vísar skipulagslýsingunni til umsagnar umhverfisnefndar.
- Fylgiskjal1756-180122-Skipulagslýsing.pdfFylgiskjalSvar Skipulagsstofnunar.pdfFylgiskjalSvar frá Heilbrigðiseftirliti Kjósasvæðis.pdfFylgiskjalSvar frá Minjastofnun.pdfFylgiskjalAthugasemdir Veitna vegna deiliskipulagslýsingar fyrir hluta Helgafellshverfis.pdfFylgiskjalMosfellsbær - Helgafell - umsögn VÍ.pdf
2. Reykjahvoll 23a - fyrirspurn varðandi breytingu á byggingarreit.201802116
Borist hefur erindi frá Stefáni Þ. Ingólfssyni dags. 8. febrúar 2018 varðandi breytingu á byggingarreit að Reykjahvol nr. 23a.
Skipulagsnefnd samþykkir að erindið verði grenndarkynnt.
3. Selholt l.nr. 204589 - ósk Veitna eftir lóð undir smádreifistöð201711226
Á 1338. fundi bæjarráðs 18. janúar 2018 var gerð eftifarandi bókun: "Samþykkt með þremur atkvæðum að vísa erindinu til skipulagsnefndar til úrvinnslu." Borist hafa frekari gögn.
Skipulagsnefnd tekur jákvætt í erindið og bendir á að sækja þarf um byggingarleyfi til byggingafulltrúa. Jafnframt leggur nefndin áherslu á vandaða og góða hönnun mannvirkisins og nánasta umhverfis þess. Staðsetning mannvirkis skal gerð í samráði við skipulagsfulltrúa og bendir þar sérstaklega á veghelgunarsvæði Þingvallavegar og að haft verði samráð við Vegagerðina varðandi það.
4. Bergrúnargata 1 og 1a - breyting á deiliskipulagi201801318
Á 454. fundi skipulagsnefndar 2. febrúar 2018 var gerð eftirfarandi bókun: "Skipulagsnefnd heimilar umsækjanda að leggja fram tillögu að breytingu á deiliskipulagi í samræmi við 2. mgr. 43. og 44. gr. skipulagslaga." Borist hefur viðbótarerindi.
Skipulagsnefnd felur skipulagsfulltrúa að óska eftir áliti lögmanns bæjarins og Skipulagsstofnunar á umbeðinni hækkun nýtingarhlutfalls.
5. Hagaland 7 - Ósk um umráðarétt yfir lóðarskika201710075
Á 448. fundi skipulagsnefndar 10. nóvember 2017 var gerð eftirfarandi bókun: "Skipulagsnefnd óskar eftir umsögn umhverfissviðs um málið." Lagt fram minnisblað skipulagsfulltrúa.
Skipulagsnefnd tekur undir fyrirliggjandi umsögn skipulagsfulltrúa og synjar því erindinu þar sem nú er unnið að deiliskipulagningu svæðisins.
6. Flugumýri 6 - fyrirspurn vegna lagerskemmu á lóðarmörkum Flugumýri 4 og 6.201802231
Borist hefur erindi frá Vélsmiðjunni Sveini dags. 7.febrúar 2018 varðandi lagerskemmu á lóðarmörkum Flugumýri 4 og 6.
Skipulagsnefnd vísar erindinu til yfirstandandi deiliskipulagsvinnu við Flugumýri.
7. Brattahlíð 23 - breyting á byggingarreit.201802273
Borist hefur erindi frá Vigfúsi Halldórssyni dags. 25. febrúar 2018 varðandi breytingu á byggingarreit að Bröttuhlíð 23.
Skipulagsnefnd samþykkir að meðhöndla málið skv. 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga.
8. Uglugata 40-46 - fyrirspurn um breytingu á deiliskipulagi.201710070
Á 454. fundi skipulagsnefndar 2. febrúar 2018 var gerð eftirfarandi bókun: "Skipulagsnefnd heimilar umsækjendum að leggja fram tillögu að breyttu deiliskipulagi." Lögð fram tillaga að breytingu á deiliskipulagi.
Skipulagsnefnd samþykkir að tillagan verði auglýst skv. 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga með þeim fyrirvara þó að gönguleið á gildandi deiliskipulagi í gegnum lóðina verði ekki felld út eins og framlögð breytingartillaga gerir ráð fyrir.
9. Efstaland 7, Umsókn um byggingarleyfi201801025
Á 455. fundi skipulagsnefndar 16. febrúar 2018 var gerð eftirfarandi bókun: "Skipulagsnefnd felur byggingarfulltrúa afgreiðslu málsins þegar fullnægjandi gögn berast. Nefndin ítrekar að skv. deiliskipulagi svæðisins er aðeins heimilt að hafa eina aukaíbúð í hverju húsi sem ekki er skráð sér veðandlag. Nefndin gerir einnig athugsemd við þaksvalir og hringstiga upp á þær sem sýndar eru á framlögðum uppdráttum." Borist hefur framhaldserindi vegna óskýrra svara skipulagsnefndar. Bjarki Bjarnason vék af fundi undir þessum lið.
Skipulagsnefnd felur skipulagsfulltrúa að óska eftir áliti lögmanns bæjarins og Skipulagsstofnunar á umbeðinni hækkun nýtingarhlutfalls.
10. Brattahlíð 19, Umsókn um byggingarleyfi201802185
Berglind Þrastardóttir Skeljatanga 36 Mosfellsbæ sækir um leyfi til að byggja úr timbri einbýlishús með innbyggðri bílgeymslu á lóðinni nr.19 við Bröttuhlíð í samræmi við framlögð gögn. Stærð: Íbúð 196,9 m2, bílgeymsla 46,9 m2, 903,0 m3. Byggingafulltrúi óskar eftir umsögn skipulagsnefndar um málið.
Skipulagsnefnd samþykkir að meðhöndla málið skv. 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga.
11. Reykjahvoll 28, Fyrirspurn201802191
Jónína S. Jónsdóttir Skeljatanga 19 Mosfellsbæ spyr hvort leyft verði að byggja einbýlishús úr timbri á lóðinni nr. 28 við Reykjahvol í samræmi við framlögð gögn.Byggingafulltrúi óskar eftir umsögn skipulagsnefndar um erindið þar sem þar sem spurt er um hvort sólstofa og bíslag megi ná 210 cm út fyrir byggingarreit.
Skipulagsnefnd felur byggingafulltrúa að ræða við umsækjendur á grundvelli þess að hönnun mannvirkis á lóðinni taki mið af gildandi deiliskipulagi og landfræðilegum aðstæðum.
12. Gerplustræti 1-5 - breyting á deiliskipulagi201707031
Á 451. fundi skipulagsnefndar 22. desember 2017 var gerð eftirfarandi bókun: "Skipulagsnefnd felur skipulagsfulltrúa að grenndarkynna erindið skv. 1 og 2. mgr. 44. gr. skipulagslaga." Deiliskipulagsbreytingin var grenndarkynnt frá 17. janúar til 19. febrúar 2018, ein athugasemd barst. Athugasemd lögð fram.
Skipulagsnefnd felur skipulagsfulltrúa og bæjarlögmanni að fara yfir framkomnar athugasemdir.
13. Samgönguáætlun fyrir Mosfellsbæ201510295
Á fundinn mætti Lilja Karlsdóttir umferðarverkfræðingur.
Umræður um málið. Nefndin þakkar fyrir kynninguna og leggur jafnframt til að málið verði kynnt fyrir ungmennaráði.
14. Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa - 327201802031F
Lagt fram.
14.1. Brattahlíð 19, Umsókn um byggingarleyfi 201802185
Berglind Þrastardóttir Skeljatanga 36 Mosfellsbæ sækir um leyfi til að byggja úr krosslímdu timbri einbýlishús með innbyggðri bílgeymslu á lóðinni nr.19 við Bröttuhlíð í samræmi við framlögð gögn.
Stærð: Íbúð 196,9 m2, bílgeymsla 46,9 m2, 903,0 m3.14.2. Brattahlíð 21 /Umsókn um byggingarleyfi 201710344
Guðmundur Ingólfsson Þrastarhöfða 1 Mosfellsbæ sækir um leyfi til að byggja einbýlishús úr krosslímdu timbri á lóðinni nr. 21 við Bröttuhlíð í samræmi við framlögð gögn.
Stærð: Íbúð 203,5 m2, bílgeymsla 34,0 m2, 867,8 m3.14.3. Brattahlíð 25 /Umsókn um byggingarleyfi 201801169
Guðrún Alda Elísdóttir Arnarhöfða 10 Mosfellsbæ sækir um leyfi til að byggja úr steinsteypu einbýlishús með innbyggðri bílgeymslu á lóðinni nr. 25 við Bröttuhlíð í samræmi við framlögð gögn.
Stærð íbúðar 197,5 m2, bílgeymsla 38,4 m2, 892,7 m3.14.4. Brattahlíð 29, Umsókn um byggingarleyfi 201712037
Baldur Freyr Stefánsson sækir um leyfi til að byggja úr forsteyptum einingum einbýlishús með innbyggðri bílgeymslu á lóðinni nr. 29 við Bröttuhlíð í samræmi við framlögð gögn.
Stærð: Íbúð 224,3 m2, bílgeymsla 36,7 m2, 947,8 m3.14.5. Bugðufljót 21A, Umsókn um byggingarleyfi 201712178
Ístak hf Bugðufljóti 19 Mosfellsbæ sækir um endursamþykkt á efri hæð starfsmannabúða úr timbri í hluta A að Bugðufljóti 21.
Heildarstærð A: 1. hæð 392,5 m2, 2. hæð 384,9 m2, 2189,8 m3.14.6. Laxatunga 173, Umsókn um byggingarleyfi 201711193
Kristján B. Kristbjörnsson Lækarbergi 6 Reykjavík sækir um leyfi til að byggja úr forsteyptum einingum einbýlishús með innbyggðri bílgeymslu á lóðinni nr. 173 við Laxatungu í samræmi við framlögð gögn.
Stærð: Íbúð 157,1 m2, bílgeymsla 30,5 m2, 596,6 m3.14.7. Reykjahvoll 28, Fyrirspurn 201802191
Jónína S Jónsdóttir Skeljatanga 19 Mosfellsbæ spyr hvort leyft verði að byggja einbýlishús úr timbri á lóðinni nr. 28 við Reykjahvol í samræmi við framlögð gögn.
14.8. Skógar Engjavegur , Umsókn um byggingarleyfi 201712213
Baldvin Már Frederiksen Njörvasundi 1 Reykjavík sækir um leyfi til að byggja úr forsteyptum einingum einbýlishús með innbyggðri bílgeymslu á lóðinni nr. 22 við Engjaveg, Skógar.
Stærð. Íbúð 138,4 m2, bílgeymsla 41,6 m2, 680,9 m3.
Jafnframt er sótt um leyfi til að rífa núverandi sumarbústað sem stendur á lóðinni að stærð 100,9 m2, 246,6 m3.
Fyrir liggur staðfest veðbókarvottorð fyrir veðbandalaus mannvirki á lóðinni.14.9. Vogatunga 31-33, Umsókn um byggingarleyfi 201705059
Mótex ehf. Hlíðarsmára 19 Kópavogi sækir um leyfi til að byggja úr forsteyptum einingum parhús með innbyggðum bílgeymslum á lóðunum nr. 31 og 33 við Vogatungu í samræmi við framlögð gögn.
Stærð nr. 31: Íbúð 1. hæð 83,8 m2, bílgeymsla 37,8 m2, íbúð 2. hæð 121,6 m2, 855,2 m3.
Stærð nr. 33: Íbúð 1. hæð 83,8 m2, bílgeymsla 37,8 m2, íbúð 2. hæð 121,6 m2, 855,2 m3.14.10. Vogatunga 43-45, Umsókn um byggingarleyfi 201705058
Mótex ehf. Hlíðarsmára 19 Kópavogi sækir um leyfi til að byggja úr forsteyptum einingum parhús með innbyggðum bílgeymslum á lóðunum nr. 43 og 45 við Vogatungu í samræmi við framlögð gögn.
Stærð nr. 43: Íbúð 1. hæð 83,8 m2, bílgeymsla 37,8 m2, íbúð 2. hæð 121,6 m2, 855,2 m3.
Stærð nr. 45: Íbúð 1. hæð 83,8 m2, bílgeymsla 37,8 m2, íbúð 2. hæð 121,6 m2, 855,2 m3.