Mál númer 202303990
- 12. apríl 2023
Bæjarstjórn Mosfellsbæjar #825
Tillaga fulltrúa B, C og S lista varðandi undirbúning framkvæmda á Varmársvæði.
Afgreiðsla 1574. fundar bæjarráðs samþykkt á 825. fundi bæjarstjórnar með 11 atkvæðum.
- 30. mars 2023
Bæjarráð Mosfellsbæjar #1574
Tillaga fulltrúa B, C og S lista varðandi undirbúning framkvæmda á Varmársvæði.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að fela umhverfissviði að skoða nánar undirbúning framkvæmda á Varmársvæði í samræmi við fyrirliggjandi tillögu.
***
Bókun D lista:
Fulltrúar D lista í bæjarráði lýsa ánægju með tillögur um áframhaldandi uppbyggingu að íþróttasvæðinu að Varmá.
Við hvetjum nýjan meirihluta til þess að tryggja að nauðsynlegar áður ákveðnar framkvæmdir hefjist sem fyrst svo ekki verði frekari tafir á uppbyggingu á svæðinu en þegar hafa orðið.