Mál númer 202301435
- 1. febrúar 2023
Bæjarstjórn Mosfellsbæjar #820
Lögð er fram til kynningar og afgreiðslu deiliskipulagsbreyting fyrir Bjarkarholt 32-34 þar sem byggingarreit bílgeymslu er breytt og hann stækkaður til austurs og suðurs.
Afgreiðsla 583. fundar skipulagsnefndar samþykkt á 820. fundi bæjarstjórnar með 11 atkvæðum.
- 27. janúar 2023
Skipulagsnefnd Mosfellsbæjar #583
Lögð er fram til kynningar og afgreiðslu deiliskipulagsbreyting fyrir Bjarkarholt 32-34 þar sem byggingarreit bílgeymslu er breytt og hann stækkaður til austurs og suðurs.
Skipulagsnefnd samþykkir að tillaga að deiliskipulagsbreytingu skuli kynnt í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Leita skal eftir umsögnum og athugasemdum hagaðila og aðliggjandi lóðarhafa, auk frekari rýni fagaðila á umferðaröryggi.
Samþykkt með fimm atkvæðum.