Hoppa í meginmál
mos.is - Forsíða

Mál númer 202103421

  • 24. mars 2021

    Bæj­ar­stjórn Mos­fells­bæj­ar #779

    Borist hef­ur er­indi frá Arki­bygg, f.h. kaup­anda Reykja­hvols 14, dags. 12.03.2021, með ósk um breyt­ingu á deili­skipu­lagi fyr­ir aukna bygg­ing­ar­heim­ild. Lögð er fram til kynn­ing­ar og af­greiðslu til­laga að deili­skipu­lags­breyt­ingu.

    Af­greiðsla 536. fund­ar skipu­lags­nefnd­ar sam­þykkt á 779. fundi bæj­ar­stjórn­ar með níu at­kvæð­um.

    • 19. mars 2021

      Skipu­lags­nefnd Mos­fells­bæj­ar #536

      Borist hef­ur er­indi frá Arki­bygg, f.h. kaup­anda Reykja­hvols 14, dags. 12.03.2021, með ósk um breyt­ingu á deili­skipu­lagi fyr­ir aukna bygg­ing­ar­heim­ild. Lögð er fram til kynn­ing­ar og af­greiðslu til­laga að deili­skipu­lags­breyt­ingu.

      Skipu­lags­nefnd sam­þykk­ir að til­lag­an hljóti af­greiðslu skv. 2. mgr. 43. gr. skipu­lagslaga nr. 123/2010. Skipu­lags­nefnd met­ur með­fylgj­andi und­ir­rit­uð gögn nær­liggj­andi hags­mun­að­ila svo að falla megi frá kröf­um um grennd­arkynn­ingu skv. 2. mgr. 43. gr. skipu­lagslaga, með vís­an í 3. mgr. 43. og 44 gr. sömu laga um kynn­ing­ar­ferli grennd­arkynn­inga. Breyt­ing­ar­til­laga deili­skipu­lags telst því sam­þykkt og skal hljóta af­greiðslu skv. 43. gr. skipu­lagslaga nr. 123/2010 og ann­ast skipu­lags­full­trúi stað­fest­ingu skipu­lags­ins. Lóð­ar­hafi skal greiða við­eig­andi gjöld í sam­ræmi við aukna nýt­ingu.