Mál númer 202008896
- 2. september 2020
Bæjarstjórn Mosfellsbæjar #766
Viðhald og endurbætur í Varmárskóla 2020
Afgreiðsla 379. fundar fræðslunefndar samþykkt á 766. fundi bæjarstjórnar með níu atkvæðum.
- 26. ágúst 2020
Fræðslunefnd Mosfellsbæjar #379
Viðhald og endurbætur í Varmárskóla 2020
Kynning frá umhverfissviði á framkvæmdum á skólahúsnæði Varmárskóla sumarið 2020.
Fræðslunefnd þakkar skólastjórum Varmárskóla og Hallgrími Skúla Hafsteinssyni verkefnisstjóra umhverfissviðs fyrir áhugavert rafrænt innlit og kynningu á endurbótum skólans. Einnig fagnar fræðslunefnd bættum starfsaðstæðum barna og starfsfólks í skólanum.