Hoppa í meginmál
mos.is - Forsíða

Mál númer 202007186

  • 19. ágúst 2020

    Bæj­ar­stjórn Mos­fells­bæj­ar #765

    Borist hef­ur er­indi frá Guð­finnu A. Hjálm­ars­dótt­ur, dags. 16.06.2020, með ósk um breyt­ingu á deili­skipu­lagi fyr­ir Lyng­brekku vegna rangra gagna upp­runa­legs skipu­lags. Lögð er fram til kynn­ing­ar deili­skipu­lags­breyt­ing.

    Af­greiðsla 520. fund­ar skipu­lags­nefnd­ar sam­þykkt á 765. fundi bæj­ar­stjórn­ar með níu at­kvæð­um.

    • 14. ágúst 2020

      Skipu­lags­nefnd Mos­fells­bæj­ar #520

      Borist hef­ur er­indi frá Guð­finnu A. Hjálm­ars­dótt­ur, dags. 16.06.2020, með ósk um breyt­ingu á deili­skipu­lagi fyr­ir Lyng­brekku vegna rangra gagna upp­runa­legs skipu­lags. Lögð er fram til kynn­ing­ar deili­skipu­lags­breyt­ing.

      Skipu­lags­nefnd sam­þykk­ir að til­lag­an verði kynnt skv. 2. mgr. 43. gr. skipu­lagslaga nr. 123/2010. Skipu­lags­nefnd met­ur breyt­ing­una óveru­lega þar sem breyt­ing­in telst minni­hátt­ar og varð­ar að­eins hags­muni land­eig­anda vegna réttra upp­mæl­inga. Með vís­an í 3. mgr. 44. gr. skipu­lagslaga um kynn­ing­ar­ferli grennd­arkynn­inga met­ur skipu­lags­nefnd land­eig­anda eina hags­muna­að­ila máls. Skipu­lags­nefnd ákveð­ur því að falla frá kröf­um um grennd­arkynn­ingu skv. 2. mgr. 43. gr. skipu­lagslaga. Breyt­ing­ar­til­laga deili­skipu­lags telst því sam­þykkt og skal hljóta af­greiðslu skv. 43. gr. skipu­lagslaga nr. 123/2010 og ann­ast skipu­lags­full­trúi stað­fest­ingu skipu­lags­ins.