Mál númer 201910260
- 30. október 2019
Bæjarstjórn Mosfellsbæjar #748
Borist hefur erindi frá umhverfissviði dags. 18. október 2019 varðandi málun á kantsteini við Brekkuland.
Afgreiðsla 500. fundar skipulagsnefndar samþykkt á 748. fundi bæjarstjórnar með 9 atkvæðum.
- 25. október 2019
Skipulagsnefnd Mosfellsbæjar #500
Borist hefur erindi frá umhverfissviði dags. 18. október 2019 varðandi málun á kantsteini við Brekkuland.
Fulltrúi L-lista vék af fundi við afgreiðslu málsins.
Skipulagsnefnd heimilar umhverfissviði að ráðast í málun á kantsteini og banna að bílar leggi meðfram Brekkulandi.