Mál númer 201710104
- 18. október 2017
Bæjarstjórn Mosfellsbæjar #703
Borist hefur erindi frá Landey ehf. dags. 6. október 2017 varðandi stofnun tveggja spildna úr Blikastaðalandi.
Afgreiðsla 446. fundar skipulagsnefndar samþykkt á 703. fundi bæjarstjórnar með níu atkvæðum.
- 13. október 2017
Skipulagsnefnd Mosfellsbæjar #446
Borist hefur erindi frá Landey ehf. dags. 6. október 2017 varðandi stofnun tveggja spildna úr Blikastaðalandi.
Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd að gerð verði umbeðin makaskipti á landi að því gefnu að landið verði afmarkað með tilliti til veghelgunarsvæðis Korpúlfsstaðavegar.