Mál númer 201709022F
- 4. október 2017
Bæjarstjórn Mosfellsbæjar #702
Afgreiðsla 260. fundar fjölskyldunefndar samþykkt á 702. fundi bæjarstjórnar með níu atkvæðum.
- 26. september 2017
Fjölskyldunefnd Mosfellsbæjar #260
Bókun fulltrúa S-lista.
Sem bæjarfulltrúa og varafulltrúa í Fjölskyldunefnd Mosfellsbæjar finnst mér það ekki ná nokkurri átt að hafa ekki sama aðgang og aðrir fulltrúar að þeim gögnum sem tilheyra þeim málum sem fjallað er um á fundi nefndarinnar. Það er ljóst að með því er komið í veg fyrir að ég geti kynnt mér þau mál sem fjallað er um með sama hætti og aðrir sem fundinn sitja. Því sé ég mér ekki fært annað en að víkja af fundi þegar að þau mál koma til afgreiðslu sem þannig er ástatt um.Fundargerð 453. barnaverndarmálafundar tekin fyrir á 260 fundi fjölskyldunefndar eins og einstök mál bera með sér.