Mál númer 201409261
- 17. desember 2014
Bæjarstjórn Mosfellsbæjar #640
Drög að nýjum reglum um ferðaþjónustu fatlaðs fólks vegna samstarfs sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu um þjónulstu.
Afgreiðsla 225. fundar fjölskyldunefndar samþykkt á 640. fundi bæjarstjórnar með níu atkvæðum.
- 10. desember 2014
Fjölskyldunefnd Mosfellsbæjar #225
Drög að nýjum reglum um ferðaþjónustu fatlaðs fólks vegna samstarfs sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu um þjónulstu.
Fjölskyldunefnd leggur til við bæjarstjórn að samþykkja framlögð drög að reglum um ferðaþjónustu fatlaðs fólks að teknu tilliti til orðalagsbreytinga 1.mgr. 2.gr. sem rætt var um á fundinum. Jafnframt falli úr gildi reglur um ferðaþjónustu fatlaðs fólks frá 20. júní 2012.