Mál númer 201312081
- 26. febrúar 2014
Bæjarstjórn Mosfellsbæjar #621
Erindi Ungmennafélags Íslands vegna ráðstefnunnar Ungt fólk og lýðræði sem haldin verður á Ísafirði 9.-11. apríl 2014.
Afgreiðsla 23. fundar ungmennaráðs lögð fram á 621. fundi bæjarstjórnar.
- 20. febrúar 2014
Ungmennaráð Mosfellsbæjar #23
Erindi Ungmennafélags Íslands vegna ráðstefnunnar Ungt fólk og lýðræði sem haldin verður á Ísafirði 9.-11. apríl 2014.
Erindi Ungmennafélags Íslands vegna ráðstefnunnar Ungt fólk og lýðræði lagt fram til kynningar. Ráðstefnan verður haldinn á Ísafirði dagana 9.-11. apríl 2014 og er ungmennaráðum boðið að senda tvo fulltrúa sína á ráðstefnuna. Nefndarmenn í ungmennaráði Mosfellsbæjar voru hvattir til að sækja ráðstefnuna.
Starfsmönnum nefndarinnar falið að kanna hvort heimild fáist hjá UMFÍ til að senda fleiri fulltrúa á ráðstefnuna og upplýsa nefndarmenn um niðurstöðuna.