Mál númer 201312005
- 29. janúar 2014
Bæjarstjórn Mosfellsbæjar #619
Umhirðuáætlun garðyrkjudeildar Mosfellsbæjar 2013-2014 lögð fram en þar kemur fram kostnaður og umfang umhirðu við opin svæði, leikvelli og stofnanalóðir í Mosfellsbæ.
Afgreiðsla 147. fundar umhverfisnefndar lögð fram á 619. fundi bæjarstjórnar.
- 23. janúar 2014
Umhverfisnefnd Mosfellsbæjar #147
Umhirðuáætlun garðyrkjudeildar Mosfellsbæjar 2013-2014 lögð fram en þar kemur fram kostnaður og umfang umhirðu við opin svæði, leikvelli og stofnanalóðir í Mosfellsbæ.
Umhverfisstjóri og garðyrkjustjóri gerðu grein fyrir umhirðuáætlun opinna svæða, leikvalla og stofnanalóða sem var síðan tekin til umræðu.
Umhverfisnefnd vekur athygli á að æskilegt er að auknu fjármagni verði veitt í þennan rekstrarlið þannig að umhirða í sveitarfélaginu verði betri.