Mál númer 201310058
- 23. október 2013
Bæjarstjórn Mosfellsbæjar #613
Erindi Sorpu bs. varðandi staðfestingu á samningi við Endurvinnsluna hf. um móttöku á skilagjaldsskyldum umbúðum.
Afgreiðsla 1138. fundar bæjarráðs samþykkt á 613. fundi bæjarstjórnar með sjö atkvæðum.
- 23. október 2013
Bæjarstjórn Mosfellsbæjar #613
Erindi Sorpu bs. varðandi staðfestingu á samningi við Endurvinnsluna hf. um móttöku á skilagjaldsskyldum umbúðum. Bæjarráð vísar samningnum til bæjarstjórnar.
Bæjarstjórn Mosfellsæjar samþykkri hér með að veita Sorpu bs. sem sveitarfélagið á í samvinnu við önnur sveitarfélög, einfalda og hlutfallslega ábyrgð miðað við eignarhluti 31. desember 2012 í Sorpu bs. vegna lántöku hjá Lánasjóði sveitarfélaga að fjárhæð 160.000.000 kr. Er ábyrgð þessi veitt sbr. heimild í 1. mr. 69. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011, og veitir sveitarstjórni lánasjóðnum veð í tekjum sínum til tryggingar þeirri ábyrgð, sbr. heimild í 2. mgr. 68. gr. sömu laga. Ábyrðin tekur til allra greiðslna sem og hvers kyns kostnaðar sem hlíts af vanskilum. Er lánið tekið til að framkvæma framkvæmdir við endurvinnslustöðvar Sorpu bs. sem fellur undir lánshæf verkefni sbr. 3. gr. laga um stofnun opinbers hlutafélags um Lánasjóð sveitarfélaga nr. 150/2006.
Bæjarstjórn skuldbindur hér með sveitarfélagið sem einn af eigendum Sorpu bs. til að selja ekki félagið að neinu leyti til einkaaðila.
Fari svo að Mosfellsbær selji eigarhlut í Sorpu bs. til annarra opinberra aðila, skuldbindur Mosfellsbæar sig til að sjá til þess að jafnframt yfirtaki nýr eigandi á sig ábyrgð á láninu að sínum hluta.Jafnframt er Haraldi Sverrissyni kt. 141261-7119, veitt fullt og ótakmarkað umboð til þess að staðfesta fyrir hönd Mosfellsbæjar veitingu ofangreindrar veðtryggingar og til þess að móttaka, undirrita og gefa út, og afhenda hvers kyns skjöl, fyrirmæli og tilkynningar, sem tengjast veitingu tryggingar þessarar.
- 10. október 2013
Bæjarráð Mosfellsbæjar #1138
Erindi Sorpu bs. varðandi staðfestingu á samningi við Endurvinnsluna hf. um móttöku á skilagjaldsskyldum umbúðum.
Bæjarráð samþykkir samninginn fyrir sitt leyti en vísar endanlegri afgreiðslu hans til bæjarstjórnar.