Mál númer 201209068
- 26. september 2012
Bæjarstjórn Mosfellsbæjar #589
Fjárlaganefnd Alþingis býður sveitarstjórnum og landshlutasamtökum til viðtals um fjármál sveitarfélaga í tengslum við vinnu nefndarinnar vegna fjárlagafrumvarps 2013.
Afgreiðsla 1089. fundar bæjarráðs, að fela bæjarstjóra að taka saman hugmyndir að málum sem taka mætti upp á fundi með fjárlaganefnd, samþykkt á 589. fundi bæjarstjórnar með sjö atkvæðum.
- 13. september 2012
Bæjarráð Mosfellsbæjar #1089
Fjárlaganefnd Alþingis býður sveitarstjórnum og landshlutasamtökum til viðtals um fjármál sveitarfélaga í tengslum við vinnu nefndarinnar vegna fjárlagafrumvarps 2013.
Til máls tóku: HS og JS.
Samþykkt með þremur atkvæðum að fela bæjarstjóra að taka saman hugmyndir að málum sem taka ætti upp á fundi með fjárlaganefnd Alþingis.