Mál númer 201111176
- 7. desember 2011
Bæjarstjórn Mosfellsbæjar #570
Fjármálastjóri mætir á fundinn og fylgir endurskoðuninni úr hlaði.
<DIV>Afgreiðsla 1053. fundar bæjarráðs, að samþykkja endurskoðun fjárhagsáætlunar 2011, samþykkt á 570. fundi bæjarstjórnar með sjö atkvæðum.</DIV>
- 24. nóvember 2011
Bæjarráð Mosfellsbæjar #1053
Fjármálastjóri mætir á fundinn og fylgir endurskoðuninni úr hlaði.
Á fundinn undir þessum dagskrárlið var mættur Pétur J. Lockton (PJL) fjármálastjóri.
Til máls tóku: HS, PJL, BH, JJB, JS og ÓG.
Fjármálastjóri fór yfir drög að endurskoðun fjárhagsáætlunar Mosfellsbæjar fyrir yfirstandandi ár, útskýrði hana í einstökum atriðum og svaraði fyrirspurnum. Endurskoðun fjárhagsáætlunar fyrir árið 2011 samþykkt með þremur atkvæðum.