Mál númer 201009145
- 22. september 2010
Bæjarstjórn Mosfellsbæjar #542
<DIV>Afgreiðsla 148. fundar íþrótta- og tómstundanefndar, um að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja nýjan samning við Tómstundaskóla Mosfellsbæjar, samþykkt á 542. fundi bæjarstjórnar með sjö atkvæðum.</DIV>
- 16. september 2010
Íþrótta- og tómstundanefnd Mosfellsbæjar #148
Á fundinn mætti Helga Jóhannesdóttir stjórnandi Tómstundaskóla Mosfellsbæjar og kynnti starfsemi skólans.
Nýr samningur Tómstundaskóla og Mosfellsbæjar lagður fram. Íþrótta- og tómstundanefnd leggur til við bæjarstjórn að samþykkja nýjan samning, enda rúmast kostnaður vegna hans innan fjárhagsáætlunar 2010.