Hoppa í meginmál
mos.is - Forsíða

5. október 2021 kl. 11:15,
í Kjarna


Fundinn sátu

  • Kristinn Pálsson skipulagsfulltrúi

Fundargerð ritaði

Kristinn Pálsson skipulagsfulltrúi


Dagskrá fundar

Almenn erindi

  • 1. Urð­ar­sel úr landi Mið­dals - deili­skipu­lags­breyt­ing frí­stunda­lóð­ar, L125359202106308

    Skipulagsnefnd samþykkti á 547. fundi sínum að auglýsa deiliskipulagsbreytingu og uppskiptingu frístundalóðarinnar Urðarsel í landi Miðdals, skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Tillagan var aðgengileg á vef sveitarfélagsins sem og að bréf grenndarkynningar voru send á eigendur landa L125331, L213970, L125205, L213939 L125343, L125359, Heilbrigðiseftirlit Kjósarsvæðis og Minjastofnun. Athugasemdafrestur var frá 19.08.2021 til og með 20.09.2021. Engar athugasemdir bárust.

    Þar sem eng­ar at­huga­semd­ir bár­ust við til­lög­una, með vís­an í 3. mgr. 41. gr. skipu­lagslaga nr. 123/2010 og af­greiðslu­heim­ild­ir skipu­lags­full­trúa, skoð­ast til­lag­an sam­þykkt og mun skipu­lags­full­trúi ann­ast gildis­töku henn­ar skv. 42. gr. skipu­lagslaga. Máls­að­ili skal greiða þann kostn­að sem af breyt­ing­unni hlýst.

    • 2. Akra­land - Ósk um heim­ild til deili­skipu­lags­breyt­ing­ar202010004

      Skipulagsnefnd samþykkti á 547. fundi sínum að auglýsa deiliskipulagsbreytingu fyrir lóðirnar Réttarhvoll 11, 13 og 15 í Reykjahverfi, skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Tillagan var aðgengileg á vef sveitarfélagsins sem og að bréf grenndarkynningar voru send á Réttarhvoll 11, 13, 15 og Reykjahvoll 2, 4 og 10. Athugasemdafrestur var frá 23.08.2021 til og með 22.09.2021. Engar athugasemdir bárust.

      Þar sem eng­ar at­huga­semd­ir bár­ust við til­lög­una, með vís­an í 3. mgr. 41. gr. skipu­lagslaga nr. 123/2010 og af­greiðslu­heim­ild­ir skipu­lags­full­trúa, skoð­ast til­lag­an sam­þykkt og mun skipu­lags­full­trúi ann­ast gildis­töku henn­ar skv. 42. gr. skipu­lagslaga. Máls­að­ili skal greiða þann kostn­að sem af breyt­ing­unni hlýst.

      Fleira var ekki gert. Fundi slitið kl. 11:30