12. febrúar 2025 kl. 16:30,
2. hæð Helgafell
Fundinn sátu
- Aldís Stefánsdóttir (ASt) formaður
- Hrafnhildur Gísladóttir (HG) varaformaður
- Elín Árnadóttir (EÁ) aðalmaður
- Elín María Jónsdóttir (EMJ) aðalmaður
- Ásgeir Sveinsson (ÁS) aðalmaður
- Elín Anna Gísladóttir (EAG) áheyrnarfulltrúi
- Þóranna Rósa Ólafsdóttir (ÞRÓ) vara áheyrnarfulltrúi
- Freyja Leópoldsdóttir (FL) áheyrnarfulltrúi
- Jóna Benediktsdóttir áheyrnarfulltrúi
- Ingibjörg Bergrós Jóhannesdóttir áheyrnarfulltrúi
- Viktoría Unnur Viktorsdóttir áheyrnarfulltrúi
- Gunnhildur María Sæmundsdóttir sviðsstjóri fræðslu- og frístundasviðs
- Þrúður Hjelm fræðslu- og frístundasvið
- Ólöf Kristín Sívertsen sviðsstjóri fræðslu- og frístundasviðs
Fundargerð ritaði
Gunnhildur Sæmundsdóttir ráðgjafi á fræðslu- og frístundarsviði Mosfellsbæjar
Dagskrá fundar
Almenn erindi
1. Endurnýjun skólalóða202211340
Kynning á framkvæmdum við skólalóðir sumarið 2025
Lagt fram og kynnt.
Gestir
- Óskar Gísli Sveinsson deildarstjóri nýframkvæmda og Hildur Hafbergsdóttir verkefnastjóri, umhverfissviði Mosfellsbæjar
2. Úttekt á upplýsingatæknimálum Mosfellsbæjar202401110
Niðurstöður úttektar á upplýsingatæknimálum hjá Mosfellsbæjar kynntar.
Lagt fram og kynnt.
Gestir
- Sif Sturludóttir leiðtogi upplýsingastjórnunar hjá Mosfellsbæ
3. Skóladagatal leik- og grunnskóla 2025-2026202401258
Breyting á skóladagatali
Fræðslunefnd samþykkir breytingu á framlögðu skóladagatali leikskóla. Breytingin felur fyrst og fremst í sér breytingu á sumarleikskólanum sem að þessu sinni verður fimm vikur, eða frá 3. júlí til og með 8. ágúst, sbr. samþykkt bæjarráðs á fundi ráðsins þann 27. júní sl. Lenging á sumarleikskóla um eina viku hefur þó ekki í för með sér breytingu á lágmarksorlofi leikskólabarna, áfram verður 20 daga lágmarksorlof í gildi eins og verið hefur síðustu ár. Markmiðið með lengri sumarskóla er að efla faglegt starfsumhverfi leikskóla eins og fjallað hefur verið ítarlega um í fræðslunefnd. Jafnframt er þessari breytingu ætlað að koma til móts við breytingar á sumarorlofi starfsfólks.
4. Skipulag á starfsemi Krikaskóla202502297
Innsent erindi frá skólastjórum Krikaskóla og Varmárskóla
Málinu vísað til umsagnar á fræðslu- og frístundasviði.
5. Klörusjóður 2025202502238
Áhersluatriði vegna úthlutunar úr Klörusjóði fyrir árið 2025.
Fræðslunefnd samþykkir að auglýsa umsóknir úr Klörusjóði fyrir 2025 og að áhersluatriði umsóknar að þessu sinni verði með vísan í “Börnin okkar?, aðgerðaráætlun Mosfellsbæjar sem snýr að bættu umhverfi í þágu barna og ung-linga.