27. maí 2025 kl. 07:00,
2. hæð Helgafell
Fundinn sátu
- Erla Edvardsdóttir (EE) formaður
- Rúnar Bragi Guðlaugsson (RBG) aðalmaður
- Katarzyna Krystyna Krolikowska (KKr) áheyrnarfulltrúi
- Margrét Gróa Björnsdóttir (MGB) áheyrnarfulltrúi
- Hjörtur Örn Arnarson (HÖA) aðalmaður
- Sævar Birgisson (SB) varaformaður
- Guðrún Þórarinsdóttir (GÞ) aðalmaður
- Edda Ragna Davíðsdóttir fræðslu- og frístundasvið
- Arnar Jónsson sviðsstjóri menningar-, íþrótta- og lýðheilsusviðs
Fundargerð ritaði
Arnar Jónsson sviðsstjóri menningar-, íþrótta- og lýðheilsusviðs
Dagskrá fundar
Almenn erindi
1. Ársskýrsla Mosfellsbæjar 2024202504472
Ársskýrsla Mosfellsbæjar 2024 lögð fram.
Ársskýrsla Mosfellsbæjar 2024 lögð fyrir og kynnt.
Íþrótta- og tómstundanefnd þakkar fyrir kynningu á þeim verkefnum sem heyra undir starfssvið nefndarinnar í ársskýrslu Mosfellsbæjar 2024.
2. 1. áfangi Blikastaðalands - deiliskipulag202304103
Tillögur rýnihóps um íþrótta-, tómstunda- og menningarmál lagðar fram til umræðu.
Niðurstöður rýnihóps um þarfagreiningu vegna íþrótta-, tómstunda og menningarmála vegna 1. áfanga Blikastaðalands kynntar og ræddar.
Íþrótta- og tómstundanefnd þakkar fyrir vinnu rýnihópsins sem er gott veganesti í þeirri vinnu sem mun eiga sér stað á næstu mánuðum.
3. Upplýsingar frá íþrótta- og tómstundafélögum201305172
Lagt fram til kynningar.
Lagðar fram upplýsingar frá þeim íþrótta- og tómstundafélögum sem skilað hafa inn gögnum um starfsemina vegna ársins 2024 til samræmis við ákvæði samstarfssamninga þeirra við Mosfellsbæ.
Þau félög sem að skilað hafa inn fullnægjandi gögnum er nú heimilt að senda inn reikning fyrir seinni hluta greiðslu samkvæmt gildandi samstarfssamningum.