22. maí 2025 kl. 10:00,
í Kjarna
Fundinn sátu
- Árni Jón Sigfússon byggingarfulltrúi
- Þór Sigurþórsson
Fundargerð ritaði
Árni Jón Sigfússon byggingarfulltrúi
Dagskrá fundar
Almenn erindi
1. Egilsmói 12 - Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Flokkur 2202503655
Alda Agnes Sveinsdóttir Egilsmóa 12 sækir um leyfi til að byggja úr timbri einnar hæðar einbýlishús með innbyggðri bílgeymslu á lóðinni Egilsmói nr. 12 í samræmi við framlögð gögn. Stærðir: Íbúð 79,2 m², 348,8 m³.
Samþykkt. Niðurstaða afgreiðslufundar felur í sér samþykkt byggingaráforma í samræmi við 11. gr. laga um mannvirki nr. 160 / 2010. Óheimilt er að hefja framkvæmdir fyrr en byggingarfulltrúi hefur gefið út byggingarleyfi í samræmi við 13. gr. laga um mannvirki nr. 160 / 2010.
2. Hamrabrekkur 21 - Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Flokkur 1202411135
Róbert Björnsson Hagamel 25 Reykjavík sækir um leyfi til að byggja úr CLT timbureiningum einnar hæðar frístundahús á lóðinni Hamrabrekkur nr. 15 í samræmi við framlögð gögn. Stærðir: 130,2 m², 554,4 m³.
Samþykkt. Niðurstaða afgreiðslufundar felur í sér samþykkt byggingaráforma í samræmi við 11. gr. laga um mannvirki nr. 160 / 2010. Óheimilt er að hefja framkvæmdir fyrr en byggingarfulltrúi hefur gefið út byggingarheimild í samræmi við 13. gr. laga um mannvirki nr. 160 / 2010.
3. Lynghóll 125346 - Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Flokkur 1202504456
Herfell ehf. Suðurlandsbraut 6 Reykjavík sækir um leyfi til niðurrifs og förgunar einnar hæðar frístundahúss úr timbri á lóðinni Lynghóll L125346. Fjarlægt byggingarmagn: 83,5 m².
Samþykkt. Niðurstaða afgreiðslufundar felur í sér samþykkt byggingaráforma í samræmi við 11. gr. laga um mannvirki nr. 160 / 2010. Óheimilt er að hefja framkvæmdir fyrr en byggingarfulltrúi hefur gefið út byggingarheimild í samræmi við 13. gr. laga um mannvirki nr. 160 / 2010. Tilkynna skal fyrirhugaða framkvæmd til Heilbrigðiseftrilits.
4. Selmerkurvegur 20 - Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Flokkur 2202503114
Ingvi Ingólfsson Arakór 1 Kópavogi sækir um leyfi til að byggja úr timbri einnar hæðar frístundahús með innbyggðri bílgeymslu á lóðinni Selmerkurvegur nr. 20 í samræmi við framlögð gögn. Stærðir: 93,6 m², bílgeymsla 36,4 m², 533,5 m³.
Samþykkt. Niðurstaða afgreiðslufundar felur í sér samþykkt byggingaráforma í samræmi við 11. gr. laga um mannvirki nr. 160 / 2010. Óheimilt er að hefja framkvæmdir fyrr en byggingarfulltrúi hefur gefið út byggingarleyfi í samræmi við 13. gr. laga um mannvirki nr. 160 / 2010.
5. Skólabraut 2-4 2R - Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Flokkur 1202505617
Mosfellsbær Þverholti 2 sækir um leyfi til að byggja úr steinsteypu undirstöður fyrir möstur vallarlýsingar á knattspyrnuvelli á íþróttasvæði við Varmá í samræmi við framlögð gögn.