20. apríl 2016 kl. 12:30,
í Kjarna
Fundinn sátu
- Hilmir Berg Halldórsson aðalmaður
- Edda Eyþórsdóttir aðalmaður
- Jóhannes Sigurhólm Kristinsson varamaður
- Steinunn Guðbrandsdóttir aðalmaður
- Davíð Smári Þórðarson varamaður
- Selma Petra Jóhannesdóttir aðalmaður
- Anton Hugi Kjartansson aðalmaður
- Úlfar Darri Lúthersson aðalmaður
- Kristján Davíð Sigurjónsson varamaður
- Edda Ragna Davíðsdóttir fræðslusvið
Fundargerð ritaði
Edda Davísðdóttir tómstundafulltrúi
Dagskrá fundar
Almenn erindi
1. Verkefnalisti Staðardagskrár 21 í Mosfellsbæ fyrir árið 2016201601613
Verkefnalisti Staðardagskrár 21 í Mosfellsbæ fyrir árið 2016 sendur frá umhverfisnefnd til nefnda bæjarins til kynningar. Verkalistinn var unninn í samráði við nefndir bæjarins og framkvæmdastjóra sviða og var staðfestur á 167. fundi umhverfisnefndar þann 31. mars 2016.
Frestað
2. Sameiginlegur fundur Ungmenna- og Öldungaráðs Mosfellsbæjar201511084
Samþykkt að hafa sameiginlegan fund ungmennaráðs og öldungaráðs þriðjudaginn 3. maí 2016. fundarefni verða ma. Ungmennaráð með kynnigu á ráðinu og sér. Öldungaráð með kynningu og þar á eftir umræða um samvinnu þessara tveggja hópa.
3. Fundur Ungmennaráðs Mosfellsbæjar með bæjarstjórn201002260
Undirbúningur ungmennaráðs Mosfellsbæjar fyrir fund ráðsins með bæjarstjórn Mosfellsbæjar, sem fyrirhugaður er í apríl ár hvert skv. samþykkt ungmennaráðs. Kallað eftir hugmyndum að umræðuefnum frá nefndarmönnum.
Farið yfir fundarefni vegna fundar ungmennaráðs með Bæjarstjórn.
Almenn erindi - umsagnir og vísanir
4. Þjónustukönnun sveitarfélaga 2015201601291
Bæjarstjórn vísaði þjónustukönnun sveitarfélaga 2015 til umfjöllunar í nefndum bæjarins.
Frestað