8. mars 2018 kl. 11:00,
í Kjarna
Fundinn sátu
- Ólafur Melsted skipulagsfulltrúi
Fundargerð ritaði
Ólafur Melsted skipulagsfulltrúi
Dagskrá fundar
Almenn erindi
1. Knatthús að Varmá - breyting á deiliskipulagi.201711041
Tillaga að breytingu á deiliskipulagi var auglýst frá 13. janúar til og með 24. febrúar 2018. Engin athugasemd barst.
Þar sem engar athugasemdir bárust við tillögu og með vísan í 41. gr. skipulagslaga skoðast tillagan samþykkt og mun skipulagsfulltrúi annast gildistöku hennar.
2. Umsókn um lóð við Lágafellslaug201611134
Tillaga að breytingu á deiliskipulagi var auglýst frá 20. janúar til og með 3. mars 2018. Engar athugasemdir bárust.
Þar sem engar athugsemdir bárust við tillöguna og með vísan í 41. gr. skipulagslaga skoðast tillagan samþykkt og mun skipulagsfulltrúi annast tildistöku hennar.