9. nóvember 2017 kl. 17:15,
2. hæð Helgafell
Fundinn sátu
- Rúnar Bragi Guðlaugsson (RBG) formaður
- Jón Eiríksson (JE) varaformaður
- Bryndís Björg Einarsdóttir aðalmaður
- Kolbrún Reinholdsdóttir (KR) aðalmaður
- Ólafur Ingi Óskarsson (ÓIÓ) aðalmaður
- Jóhannes Bjarni Eðvarðsson (JBE) áheyrnarfulltrúi
- Guðbjörg Linda Udengard (LU) framkvæmdastjóri fræðslusviðs
- Sigurður Brynjar Guðmundsson menningarsvið
- Edda Ragna Davíðsdóttir menningarsvið
Fundargerð ritaði
Edda R. Davíðsdóttir Tómstundafulltrúi Mosfellsbæjar
Dagskrá fundar
Almenn erindi
1. Fjölnota íþróttahús í Mosfellsbæ201401534
Á fundi bæjarstjórnar 1. nóvember var samþykkt með níu atkvæðum að vísa tillögunni til íþrótta- og tómstundanefndar í tengslum við umfjöllun við málið þar.
Íþrótta - og tómstundanefnd þakkar gestum fyrir kynninguna og vill lýsa yfir ánægju sinni með tillöguna. Jafnframt vill hún leggja til að skoðaður verði möguleikinn á að bæta við salernisaðstöðu á sama tíma og húsið verður reist.
Gestir
- Haraldur Sverrisson Bæjarstjóri,
- Dagný Kristinsdóttir formaður umfa
- Jóhanna Hansen, Framkvæmdastjóri umhverfissviðs
- Kjartan Reinholdsson, UMFA
- Gunnar kristjánsson, Verkís
3. Tillaga Ungmennaráðs Mosfellsbæjar um setu ungmenna í nefndum Mosfellbæjar.201711065
Á árlegum fundi Ungmennaráðs (43. Fundur 03.05.17) og Bæjarstjórnar Mosfellsbæjar bar Ungmennaráð ma. upp þá hugmynd að Ungmennaráð Mosfellsbæjar ætti áheyrnarfulltrúa í nefndum Mosfellsbæjar.
Frestað
Almenn erindi - umsagnir og vísanir
2. Fjárhagsáætlun Mosfellsbæjar 2018-2021201705191
Fjárhagsáætlun Mosfellsbæjar 2018-2021 send til umfjöllunar í nefndum í kjölfar fyrri umræðu um hana á fundi bæjarstjórnar.
Fjáhagsáætlun 2018 fyrir frístundasvið kynnt. Um aukning á framlagi til málaflokksins fyrir næsta ár. Fjárhagsáætlun í heild verður lögð fyrir bæjarsjórn þann 29. nóvember.