jumpToMain
mos.is - home

6 month-5 2025 kl. 07:00,
2. hæð Helgafell


Fundinn sátu

  • Valdimar Birgisson (VBi) formaður
  • Sævar Birgisson (SB) varaformaður
  • Ásgeir Sveinsson (ÁS) aðalmaður
  • Helga Jóhannesdóttir (HJó) aðalmaður
  • Ómar Ingþórsson (ÓI) aðalmaður
  • Guðmundur Hreinsson (GH) áheyrnarfulltrúi
  • Jóhanna Björg Hansen sviðsstjóri umhverfissviðs
  • Kristinn Pálsson skipulagsfulltrúi
  • Árni Jón Sigfússon byggingarfulltrúi

Fundargerð ritaði

Árni Jón Sigfússon Byggingarfulltrúi


Dagskrá fundar

Almenn erindi

  • 1. L228084 Í Mið­lands­landi II óbyggt svæði - deili­skipu­lag202503005

    Lögð er fram til kynningar og afgreiðslu tillaga K.J. Ark, f.h. landeigenda, að nýju deiliskipulagi frístundabyggðar á skilgreindu óbyggðu svæði vestan Silungatjarnar. Tillaga felur í sér uppbyggingu aðalhúss, bílgeymslu og gestahús allt að 380 m2 á um 12.225 m2 landi. Málinu var frestað vegna tímaskorts á síðasta fundi nefndarinnar.

    Skipu­lags­nefnd synj­ar með fimm at­kvæð­um fyr­ir­liggj­andi til­lögu að deili­skipu­lagi sök­um þess að um­rædd lóð er skil­greind sem óbyggt svæði í að­al­skipu­lagi en ekki frí­stunda­byggð.

  • 2. Úugata 1 og 2-4 - merkjalýs­ing, lóða- og landa­mál202502333

    Lögð eru fram til kynningar og afgreiðslu breytt mæli- og lóðarblöð fyrir Úugata 1 og 2-4, til samræmis við umræður og afgreiðslur breyttrra stærðar Úugötu 2-4 á 617. fundi skipulagsnefndar og samþykkt á 1668. bæjarráðs Mosfellsbæjar vegna breytinga lóðar að Úugötu 1. Breyting hefur áhrif á umræddar lóðir og aðliggjandi bæjarland. Málinu var frestað vegna tímaskorts á síðasta fundi nefndarinnar.

    Skipu­lags­nefnd sam­þykk­ir með fimm at­kvæð­um breytta stærð lóða og ný lóða­blöð.

    • 3. Skála­fell - Kýr­hóls­flói og Stóri-Bugðuflói - Deili­skipu­lag í Reykja­vík202505500

      Lögð er fram til kynningar skipulags- og verklýsing fyrir nýtt deiliskipulag að Skálafelli. Samkvæmt kynningargögnum er um að ræða nýtt deiliskipulag vegna uppbyggingar á landi Kýrhólsflóa og Stóra-Bugðuflóa í Skálafelli þar sem ráðgert er að reisa þrjú hótel með heilsulind, líkamsræktaraðstöðu, veitingastöðum, ráðstefnusölum, sýningarrými, villum o.fl. Byggingar verða allt að þrjár hæðir, gistirými um 250 og starfsmannaíbúðir 200 talsins. Athugasemdafrestur vinnslutillögu var til og með 15.05.2025. Hjálögð er til kynningar umsögn skipulagsfulltrúa Mosfellsbæjar, dags. 14.05.2025, sem skilað var inn í Skipulagsgáttina fyrir hönd sveitarfélagsins. Málinu var frestað vegna tímaskorts á síðasta fundi nefndarinnar.

      Lagt fram og kynnt. Skipu­lags­nefnd tek­ur und­ir fyr­ir­liggj­andi um­sögn skipu­lags­full­trúa.

    • 4. Efsta­land 1 - ósk um aðal- og deili­skipu­lags­breyt­ingu202408423

      Lögð er fram til kynningu tillaga að aðal- og deiliskipulagsbreytingu fyrir Efstaland 1 á vinnslustigi. Hjálögð er samantekt og rýni innsendra umsagna skipulagslýsingar ásamt drögum að viðbrögðum. Málinu var frestað vegna tímaskorts á síðasta fundi nefndarinnar.

      Skipu­lags­nefnd sam­þykk­ir með fimm at­kvæð­um að kynna og aug­lýsa fyr­ir­liggj­andi til­lögu á vinnslu­stigi í sam­ræmi við 4. mgr. 40 gr. skipu­lagslaga nr. 123/2010. Skipu­lags­full­trúa fal­ið að full­vinna gögn, í sam­starfi við lóð­ar­hafa, til kynn­ing­ar og und­ir­búa kynn­ing­ar­f­und fyr­ir íbúa. Nefnd­in sam­þykk­ir fyr­ir­liggj­andi við­brögð um­sagna.

      • 5. Helga­fells­hverfi 6. áfangi - nýtt deili­skipu­lag202101267

        Lögð eru fram til kynningar og umræðu ný drög að deiliskipulagi 6. áfanga Helgafellshverfis við Ásaveg.

        Skipu­lags­nefnd sam­þykk­ir með fimm at­kvæð­um að fela skipu­lags­full­trúa og um­hverf­is­sviði áfram­hald­andi vinnu máls, í sam­ræmi við um­ræð­ur.

        • 6. Heild­ar­end­ur­skoð­un að­al­skipu­lags Mos­fells­bæj­ar 2011-2030202005057

          Lagðir eru fram til kynningar og umræðu uppfærðir uppdrættir tillögu nýs aðalskipulags Mosfellsbæjar 2040. Uppdrættir og framsetning er til samræmis við kröfu um stafræn skil aðalskipulagsáætlana.

          Skipu­lags­nefnd þakk­ar kynn­ingu og yf­ir­ferð skipu­lags­full­trúa. Skipu­lags­nefnd sam­þykk­ir með fimm at­kvæð­um að fela skipu­lags­full­trúa og um­hverf­is­sviði áfram­hald­andi vinnu nýs að­al­skipu­lags á grund­velli þeirra for­sendna sem nýir upp­drætt­ir byggja á.

          • 7. Óskot L123738 óbyggt svæði - ósk um að­al­skipu­lags­breyt­ingu202505640

            Borist hefur erindi frá Landlínum ehf., f.h. landeigenda að Óskoti, dags. 19.05.2025, með ósk um að breytta landnotkun lands úr óbyggðu svæði í opið svæði til sérstakra nota, í samræmi við gögn.

            Skipu­lags­nefnd sam­þykk­ir með fimm at­kvæð­um að land Óskots verði inn­fært í nýtt að­al­skipu­lag sem Opið svæði (OP) í sam­ræmi við ósk og skipu­lags­reglu­gerð nr. 123/2010. Breyt­ing­in verð­ur inn­færð í end­ur­skoð­un nýs að­al­skipu­lags, með vís­an í vinnslu nýrra upp­drátta skipu­lags­ins. Opna svæð­ið að Óskoti mun falla und­ir ákvæði Græna tef­ils­ins, en tref­ill­inn er skipu­lagt úti­vist­ar­svæði þar sem skipt­ast á skóg­ur og opin svæði. Meg­in­regl­an er að ekki skuli reisa frek­ari byggð inn­an hans en heim­ilt verð­ur reisa þar bygg­ing­ar og mann­virki sem tengjast skipu­lagðri úti­vist­ar- og frí­stunda­iðju sem vinna þarf frek­ari í skipu­lags­áætl­un­um. Nefnd­in árétt­ar að golf­vell­ir, líkt og er­indi fjall­ar jafn­framt um, falla und­ir land­nýt­ingu Íþrótta­svæða (ÍÞ). Áform í er­indi, að­kom­ur og inn­við­ir eru of óljós­ir til þess að hægt sé að breyta Óskoti í íþrótta­svæði án frek­ari und­ir­bún­ings þó upp­bygg­ing á slíku falli vel að mark­mið­um tref­ils­ins um úti­vist og nátt­úru.

          • 8. Flokk­un land­bún­að­ar­lands í Mos­fells­bæ202506014

            Lagðar eru fram til kynningar drög og vinnugögn Lands og skógar vegna flokkun landbúnaðarlands á Íslandi með tilliti til ákvæða Landsskipulagsstefnu. Þar er því beint til sveitarfélaga að byggja skipulagsákvarðanir um ráðstöfun lands í dreifbýli til landbúnaðar og annarrar nýtingar á flokkun landbúnaðarlands. Verkefnið tengist endurskoðun aðalskipulags.

            Lagt fram og kynnt

              Helga Jó­hann­es­dótt­ir full­trúi D-lista Sjálf­stæð­is­flokks vék af fundi kl. 8:45.
            • 9. Sunnukriki 5 - ósk um skipu­lags­breyt­ingu202503499

              Lagt er fram til kynningar minnisblað skipulagsfulltrúa vegna fundar með málsaðila, til samræmis við afgreiðslu á 628. fundi nefndarinnar. Hjálagt er til afgreiðslu erindi frá Guðjóni Magnússyni, f.h. Sunnukrika 5 ehf.

              Skipu­lags­nefnd sam­þykk­ir með fjór­um at­kvæð­um að óska eft­ir frek­ari gögn­um frá lóð­ar­hafa er skýr­ir sam­spil íbúða, íþrótta og þjón­ustu í sam­ræmi við hug­mynd­ir máls­að­ila, með vís­an í fyr­ir­liggj­andi minn­is­blað. Skipu­lags­nefnd tel­ur vert að rýna frek­ar þörf fyr­ir bíla­kjall­ara með til­lit til úr­færslu til­lagna áður en af­staða er tekin til fjölda íbúða.

            • 10. Stofn­lögn með Vest­ur­lands­vegi og Skar­hóla­braut - fram­kvæmda­leyfi202505593

              Borist hefur ósk um framkvæmdaleyfi frá Veitum. ohf, dags. 16.05.2025, vegna lagningu háspennustrengjar frá Aðveitustöð 9, í botni Dælustöðvarvegar, að Aðveitustöð 8 við Korpu í Reykjavík. Tilgangur framkvæmdar er að styrkja rafdreifikerfið í Mosfellsbæ, tryggja afhendingaröryggi og afleggja loftlínu. Lagnaleið er meðfram Vesturlandsvegi, Skarhólabraut og Dælustöðvarvegi. Hjálögð eru undirrituð samþykki landeigenda sem framkvæmdin snertir.

              Skipu­lags­nefnd sam­þykk­ir með fjór­um at­kvæð­um að fela skipu­lags­full­trúa að gefa út fram­kvæmda­leyfi í sam­ræmi við 13. og 15. gr. skipu­lagslaga nr. 123/2010 og skv. reglu­gerð um fram­kvæmda­leyfi nr. 772/2012.

            • 11. Kæra nr. 58-2025 til ÚUA vegna Suð­ur Reykjalands L125425202504234

              Lögð er fram til kynn­ing­ar kæra Ólaf­ar Guðnýj­ar Valdi­mars­dótt­ur, dags. 10.04.2025, til Úr­skurð­ar­nefnd­ar um­hverf­is- og auð­linda­mála vegna synj­un­ar á erindi og deiliskipulagsósk kæranda á 628. fundi skipulagsnefndar Mosfellsbæjar. Hjálögð er umsögn Mosfellsbæjar til úrskurðarnefndarinnar.

              Lagt fram og kynnt.

            • 12. Lerki­byggð 10 Grund - deili­skipu­lags­gerð og upp­bygg­ing202409601

              Lögð er fram til kynningar umsögn skipulagsfulltrúa og lögmanns í samræmi við afgreiðslu á 617. fundi skipulagsnefndar. Hjálagt er erindi málsaðila til afgreiðslu.

              Með vís­an í rök­stuðn­ing í fyr­ir­liggj­andi um­sögn skipu­lags­full­trúa og lög­manns synj­ar skipu­lags­nefnd með fjór­um at­kvæð­um ósk um aug­lýs­ingu nýs deili­skipu­lags fyr­ir Lerki­byggð 10. Synj­un er á grund­velli óljósra þátta um að­komu, eign­ar­hald, inn­viði og kostn­að er teng­ist upp­bygg­ingu. Breyt­ing­in hef­ur áhrif á eign þriðja að­ila.

            • 13. Íveru­hús á lóð - stefna og leið­bein­ing­arit202506011

              Lögð eru fram til kynningar og afgreiðslu drög og tillaga skipulagsfulltrúa Mosfellsbæjar á verklagsreglum og ákvæðum fyrir ný íveruhús á sérbýlishúsalóðum í þéttbýlinu.

              Frestað vegna tíma­skorts.

              • 14. Bjarg­slund­ur 8 - Um­sókn um bygg­ing­ar­heim­ild eða -leyfi - Flokk­ur 1202504090

                Lögð er fram til kynningar umsögn skipulagsfulltrúa, í formi tillögu að reglum og ákvæðum, í samræmi við afgreiðslu á 630. fundi skipulagsnefndar. Hjálögð er umsangarbeiðni byggingarfulltrúa til afgreiðslu.

                Frestað vegna tíma­skorts.

                • 15. Súlu­höfði 39 - Um­sókn um bygg­ing­ar­heim­ild eða -leyfi - Flokk­ur 2202504003

                  Lögð er fram til kynningar umsögn skipulagsfulltrúa, í formi tillögu að reglum og ákvæðum, í samræmi við afgreiðslu á 630. fundi skipulagsnefndar. Hjálögð er umsangarbeiðni byggingarfulltrúa til afgreiðslu.

                  Frestað vegna tíma­skorts.

                  • 16. Fells­hlíð við Helga­fell - deili­skipu­lag202405235

                    Lögð er fram til kynningar og afgreiðslu tillaga að nýju deiliskipulagi fyrir Fellshlíð. Tillagan felur í sér byggingarheimildir fyrir tvö aukahús á lóð auk vinnustofu/bílgeymslu á þremur byggingarreitum. Innfærð er grenndarkynnt stækkun á núverandi íbúðarhúsi. Viðbættar byggingarheimildir nema samanlagt 217 m2. Áform eru í samræmi við kynnta deiliskipulagslýsingu.

                    Frestað vegna tíma­skorts.

                    • 17. Um­sókn um lóð til af­nota sunn­an við Fells­hlíð202505698

                      Lögð er fram til afgreiðslu ósk Arnar Elíasar Guðmundssonar, eiganda Fellshlíðar, um afnot bæjarlands sunnan Fellshlíðar að íbúðarhúsalóðum Úugötu.

                      Frestað vegna tíma­skorts.

                      • 18. Helga­dals­veg­ur 60 - deili­skipu­lags­breyt­ing202306155

                        Lögð er fram til kynningar og afgreiðslu ný tillaga landeigenda að Helgadalsvegi 60, dags. 27.05.2025, að deiliskipulagsbreytingu landbúnaðarlands. Tillagan felur í sér byggingarheimildir fyrir 400 m2 íbúðarhús, nokkur gróðurhús samanlagt 150 m2, aðstöðuhús gróðurhúsa samanlagt 100 m2, vélageymslu 200 m2 og bændagistingu í nokkrum húsum samanlagt 400 m2.

                        Frestað vegna tíma­skorts.

                        Fundargerðir til kynningar

                        • 19. Af­greiðslufund­ur bygg­ing­ar­full­trúa - 548202505036F

                          Fundargerð lögð fram til kynningar.

                          Lagt fram.

                          • 19.1. Eg­ils­mói 12 - Um­sókn um bygg­ing­ar­heim­ild eða -leyfi - Flokk­ur 2 202503655

                            Alda Agnes Sveins­dótt­ir Eg­ils­móa 12 sæk­ir um leyfi til að byggja úr timbri einn­ar hæð­ar ein­býl­is­hús með inn­byggðri bíl­geymslu á lóð­inni Eg­ils­mói nr. 12 í sam­ræmi við fram­lögð gögn.
                            Stærð­ir: Íbúð 79,2 m², 348,8 m³.

                          • 19.2. Hamra­brekk­ur 21 - Um­sókn um bygg­ing­ar­heim­ild eða -leyfi - Flokk­ur 1 202411135

                            Ró­bert Björns­son Haga­mel 25 Reykja­vík sæk­ir um leyfi til að byggja úr CLT timb­urein­ing­um einn­ar hæð­ar frí­stunda­hús á lóð­inni Hamra­brekk­ur nr. 15 í sam­ræmi við fram­lögð gögn.
                            Stærð­ir: 130,2 m², 554,4 m³.

                          • 19.3. Lyng­hóll 125346 - Um­sókn um bygg­ing­ar­heim­ild eða -leyfi - Flokk­ur 1 202504456

                            Her­fell ehf. Suð­ur­lands­braut 6 Reykja­vík sæk­ir um leyfi til nið­urrifs og förg­un­ar einn­ar hæð­ar frí­stunda­húss úr timbri á lóð­inni Lyng­hóll L125346. Fjar­lægt bygg­ing­armagn: 83,5 m².

                          • 19.4. Sel­merk­ur­veg­ur 20 - Um­sókn um bygg­ing­ar­heim­ild eða -leyfi - Flokk­ur 2 202503114

                            Ingvi Ing­ólfs­son Arakór 1 Kópa­vogi sæk­ir um leyfi til að byggja úr timbri einn­ar hæð­ar frí­stunda­hús með inn­byggðri bíl­geymslu á lóð­inni Sel­merk­ur­veg­ur nr. 20 í sam­ræmi við fram­lögð gögn.
                            Stærð­ir: 93,6 m², bíl­geymsla 36,4 m², 533,5 m³.

                          • 19.5. Skóla­braut 2-4 2R - Um­sókn um bygg­ing­ar­heim­ild eða -leyfi - Flokk­ur 1 202505617

                            Mos­fells­bær Þver­holti 2 sæk­ir um leyfi til að byggja úr stein­steypu und­ir­stöð­ur fyr­ir möst­ur vall­ar­lýs­ing­ar á knatt­spyrnu­velli á íþrótta­svæði við Varmá í sam­ræmi við fram­lögð gögn.

                          Fleira var ekki gert. Fundi slitið kl. 09:06