Mál númer 202505593
- 6 month-5 2025
Skipulagsnefnd Mosfellsbæjar #632
Borist hefur ósk um framkvæmdaleyfi frá Veitum. ohf, dags. 16.05.2025, vegna lagningu háspennustrengjar frá Aðveitustöð 9, í botni Dælustöðvarvegar, að Aðveitustöð 8 við Korpu í Reykjavík. Tilgangur framkvæmdar er að styrkja rafdreifikerfið í Mosfellsbæ, tryggja afhendingaröryggi og afleggja loftlínu. Lagnaleið er meðfram Vesturlandsvegi, Skarhólabraut og Dælustöðvarvegi. Hjálögð eru undirrituð samþykki landeigenda sem framkvæmdin snertir.
Skipulagsnefnd samþykkir með fjórum atkvæðum að fela skipulagsfulltrúa að gefa út framkvæmdaleyfi í samræmi við 13. og 15. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og skv. reglugerð um framkvæmdaleyfi nr. 772/2012.