jumpToMain
mos.is - home

Mál númer 202505640

  • 6 month-5 2025

    Skipu­lags­nefnd Mos­fells­bæj­ar #632

    Borist hef­ur er­indi frá Land­lín­um ehf., f.h. land­eig­enda að Óskoti, dags. 19.05.2025, með ósk um að breytta land­notk­un lands úr óbyggðu svæði í opið svæði til sér­stakra nota, í sam­ræmi við gögn.

    Skipu­lags­nefnd sam­þykk­ir með fimm at­kvæð­um að land Óskots verði inn­fært í nýtt að­al­skipu­lag sem Opið svæði (OP) í sam­ræmi við ósk og skipu­lags­reglu­gerð nr. 123/2010. Breyt­ing­in verð­ur inn­færð í end­ur­skoð­un nýs að­al­skipu­lags, með vís­an í vinnslu nýrra upp­drátta skipu­lags­ins. Opna svæð­ið að Óskoti mun falla und­ir ákvæði Græna tef­ils­ins, en tref­ill­inn er skipu­lagt úti­vist­ar­svæði þar sem skipt­ast á skóg­ur og opin svæði. Meg­in­regl­an er að ekki skuli reisa frek­ari byggð inn­an hans en heim­ilt verð­ur reisa þar bygg­ing­ar og mann­virki sem tengjast skipu­lagðri úti­vist­ar- og frí­stunda­iðju sem vinna þarf frek­ari í skipu­lags­áætl­un­um. Nefnd­in árétt­ar að golf­vell­ir, líkt og er­indi fjall­ar jafn­framt um, falla und­ir land­nýt­ingu Íþrótta­svæða (ÍÞ). Áform í er­indi, að­kom­ur og inn­við­ir eru of óljós­ir til þess að hægt sé að breyta Óskoti í íþrótta­svæði án frek­ari und­ir­bún­ings þó upp­bygg­ing á slíku falli vel að mark­mið­um tref­ils­ins um úti­vist og nátt­úru.