jumpToMain
mos.is - home

Mál númer 202503499

  • 6 month-5 2025

    Skipu­lags­nefnd Mos­fells­bæj­ar #632

    Lagt er fram til kynn­ing­ar minn­is­blað skipu­lags­full­trúa vegna fund­ar með máls­að­ila, til sam­ræm­is við af­greiðslu á 628. fundi nefnd­ar­inn­ar. Hjálagt er til af­greiðslu er­indi frá Guð­jóni Magnús­syni, f.h. Sunnukrika 5 ehf.

    Skipu­lags­nefnd sam­þykk­ir með fjór­um at­kvæð­um að óska eft­ir frek­ari gögn­um frá lóð­ar­hafa er skýr­ir sam­spil íbúða, íþrótta og þjón­ustu í sam­ræmi við hug­mynd­ir máls­að­ila, með vís­an í fyr­ir­liggj­andi minn­is­blað. Skipu­lags­nefnd tel­ur vert að rýna frek­ar þörf fyr­ir bíla­kjall­ara með til­lit til úr­færslu til­lagna áður en af­staða er tekin til fjölda íbúða.

  • 2 month-3 2025

    Bæj­ar­stjórn Mos­fells­bæj­ar #869

    Borist hef­ur er­indi frá Guð­jóni Magnús­syni arki­tekt, f.h. Sunnukrika 5 ehf. lóð­ar­hafa að Sunnukrika 5, með ósk um aðal- og deili­skipu­lags­breyt­ingu lóð­ar er varð­ar bygg­ing­armagn, fjölda íbúða og bíla­kjall­ara, í sam­ræmi við bréf.

    Af­greiðsla 628. fund­ar skipu­lags­nefnd­ar stað­fest á 869. fundi bæj­ar­stjórn­ar með 11 at­kvæð­um.

    • 28 month-2 2025

      Skipu­lags­nefnd Mos­fells­bæj­ar #628

      Borist hef­ur er­indi frá Guð­jóni Magnús­syni arki­tekt, f.h. Sunnukrika 5 ehf. lóð­ar­hafa að Sunnukrika 5, með ósk um aðal- og deili­skipu­lags­breyt­ingu lóð­ar er varð­ar bygg­ing­armagn, fjölda íbúða og bíla­kjall­ara, í sam­ræmi við bréf.

      Lagt fram og kynnt. Skipu­lags­nefnd sam­þykk­ir með fjór­um at­kvæð­um að fela skipu­lags­full­trúa og formanni skipu­lags­nefnd­ar að funda með lóð­ar­hafa og hönn­uð­um hans.