Mál númer 202506238
- 11. júní 2025
Afgreiðslufundur skipulagsfulltrúa #96
Borist hefur erindi frá Maríu Dís Ásgerisdóttur, f.h. Vegagerðarinnar, með ósk um framkvæmdaleyfi fyrir lagningu reiðstígs meðfram Hafravatni á 500 m kafla. Áætlaður framkvæmdatími er fyrri hluti júlí. Áætlanir eru í samræmi við samþykkt deiliskipulag reiðleiðarinnar, samþykkt í bæajrstjórn Mosfellsbæjar þann 01.11.2006.
Með vísan í afgreiðsluheimildir skipulagsfulltrúa, í samþykktum um stjórn Mosfellsbæjar, samþykkir skipulagsfulltrúi útgáfu framkvæmdaleyfis í samræmi við 13. og 15. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og reglugerð um framkvæmdaleyfi nr. 772/2012, mun hann annast útgáfu þess. Veitt er leyfi fyrir hluta reiðleiðar í samræmi við deiliskipulag. Skipulagsfulltrúi áréttar mikilvægi samráðs Vegagerðarinnar við landeigendur á svæðinu og að tryggja öryggismerkingar á framkvæmdastað, eftir því sem við á.