Hoppa í meginmál
mos.is - Forsíða

11. júní 2025 kl. 12:30,
í Kjarna


Fundinn sátu

  • Kristinn Pálsson skipulagsfulltrúi

Fundargerð ritaði

Kristinn Pálsson skipulagsfulltrúi


Dagskrá fundar

Almenn erindi

  • 1. Reiðstíg­ur norð­an Hafra­vatns - fram­kvæmda­leyfi202506238

    Borist hefur erindi frá Maríu Dís Ásgerisdóttur, f.h. Vegagerðarinnar, með ósk um framkvæmdaleyfi fyrir lagningu reiðstígs meðfram Hafravatni á 500 m kafla. Áætlaður framkvæmdatími er fyrri hluti júlí. Áætlanir eru í samræmi við samþykkt deiliskipulag reiðleiðarinnar, samþykkt í bæajrstjórn Mosfellsbæjar þann 01.11.2006.

    Með vís­an í af­greiðslu­heim­ild­ir skipu­lags­full­trúa, í sam­þykkt­um um stjórn Mos­fells­bæj­ar, sam­þykk­ir skipu­lags­full­trúi út­gáfu fram­kvæmda­leyf­is í sam­ræmi við 13. og 15. gr. skipu­lagslaga nr. 123/2010 og reglu­gerð um fram­kvæmda­leyfi nr. 772/2012, mun hann ann­ast út­gáfu þess. Veitt er leyfi fyr­ir hluta reiðleiðar í samræmi við deiliskipulag. Skipulagsfulltrúi áréttar mikilvægi samráðs Vegagerðarinnar við landeigendur á svæðinu og að tryggja öryggismerkingar á framkvæmdastað, eftir því sem við á.

    • 2. Sel­merk­ur­veg­ur 17 - deili­skipu­lags­breyt­ing202504091

      Skipulagsnefnd samþykkti á 629. fundi sínum að kynna og auglýsa deiliskipulagsbreytingu fyrir Selmerkurveg 17 í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Tillagan og gögn voru kynnt á vef Mosfellsbæjar www.mos.is, í Skipulagsgáttinni og með kynningarbréfum til aðliggjandi landeigenda á Ísland.is. Umsagnafrestur var frá 13.05.2025 til og með 10.06.2025. Engar athugasemdir bárust.

      Þar sem eng­ar at­huga­semd­ir bár­ust við til­lög­una, með vís­an í 3. mgr. 41. gr. skipu­lagslaga nr. 123/2010, 5.9.4. gr. skipulagsreglugerðar nr. 90/2013 og afgreiðsluheimildir skipulagsfulltrúa í samþykktum um stjórn Mosfellsbæjar, skoð­ast til­lag­an sam­þykkt og mun skipu­lags­full­trúi ann­ast gildistöku deiliskipulagsins skv. 2. mgr. 43.gr. sömu laga. Skipulagsfulltrúi áréttar að aðkoma um einkalönd eru einkaréttarlegir samningar.

      Fleira var ekki gert. Fundi slitið kl. 13:00