Mál númer 202409630
- 14. mars 2025
Skipulagsnefnd Mosfellsbæjar #627
Lögð er fram til kynningar og umfjöllunar skipulagsfulltrúa byggingarleyfisumsókn, aðaluppdrættir og lóðahönnun að Korputúni 8. Til samræmis við ákvæði í kafla 3.3. í deiliskipulagi Korputúns, vistvæns atvinnukjarna í Blikastaðalandi, veitir skipulagsfulltrúi umsögn fyrir útgáfu leyfa. Sótt er um leyfi fyrir 677,0 m2 staðsteyptu verslunarhúsnæði á einni hæð. Hjálögð er skoðunarskýrsla skipulagsfulltrúa, umsagnir og athugasemdir hönnunar til samræmis við ákvæði deiliskipulagsins.
Lagt fram.
- 14. mars 2025
Skipulagsnefnd Mosfellsbæjar #627
Reitir - þróun ehf. Kringlunni 4-12 Reykjavík sækja um leyfi til að byggja úr steinsteypu einnar hæðar verslunar- og þjónustuhúsnæði á lóðinni Korputún nr. 8 í samræmi við framlögð gögn. Stærðir: 677,0 m², 3.907,8 m³.
Lagt fram.
- 28. febrúar 2025
Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa #542
Reitir - þróun ehf. Kringlunni 4-12 Reykjavík sækja um leyfi til að byggja úr steinsteypu einnar hæðar verslunar- og þjónustuhúsnæði á lóðinni Korputún nr. 8 í samræmi við framlögð gögn. Stærðir: 677,0 m², 3.907,8 m³.
Samþykkt. Niðurstaða afgreiðslufundar felur í sér samþykkt byggingaráforma í samræmi við 11. gr. laga um mannvirki nr. 160 / 2010. Óheimilt er að hefja framkvæmdir fyrr en byggingarfulltrúi hefur gefið út byggingarleyfi í samræmi við 13. gr. laga um mannvirki nr. 160 / 2010.
- 27. febrúar 2025
Afgreiðslufundur skipulagsfulltrúa #90
Lögð er fram til kynningar og umfjöllunar skipulagsfulltrúa byggingarleyfisumsókn, aðaluppdrættir og lóðahönnun að Korputúni 8. Til samræmis við ákvæði í kafla 3.3. í deiliskipulagi Korputúns, vistvæns atvinnukjarna í Blikastaðalandi, veitir skipulagsfulltrúi umsögn fyrir útgáfu leyfa. Sótt er um leyfi fyrir 677,0 m2 staðsteyptu verslunarhúsnæði á einni hæð. Hjálögð er skoðunarskýrsla skipulagsfulltrúa, umsagnir og athugasemdir hönnunar til samræmis við ákvæði deiliskipulagsins.
Með vísan í fyrirliggjandi samantekt bendir skipulagsfulltrúi á að ýtrustu kröfum um virkar framhliðar er ekki fyllt. Mælst er til þess að með breytingaruppdráttum geti hönnuðir bætt úr atriðum er varða ásýnd mannvirkja til þess að tryggja gæði svæðisins í samræmi við markmið skipulagsins. Þá skal sérstaklega bent á að ákvæði um hjólastæði, hjólagrindur og yfirbyggingar þeirra er ekki uppfyllt. Mikilvægt er að innviðir styðji við sýn um umhverfisvæna og virka ferðamáta.
Skipulagsfulltrúi telur að athugasemdir megi leysa við framkvæmd og framvindu uppbyggingarinnar. Umsögn er ekki með þeim hætti að stöðva umfjöllun, afgreiðslu eða samþykkt byggingaráforma að hálfu byggingarfulltrúa, til samræmis við ákvæði byggingarreglugerðar nr. 112/2012.