Mál númer 201207060
- 19. júlí 2012
Bæjarstjórn Mosfellsbæjar #584
Um er að ræða ósk um framlengingu á launalausu leyfi kennara - en þar sem hann gegnir trúnaðarstörfum fyrir stéttarfélag er um kjarasamningsbundin réttindi hans að ræða. Því er mælt með að verða við þessari beiðni Þórðar Árna Hjaltested.
Til máls tóku: BH.
Samþykkt með sjö atkvæðum að veita umrætt leyfi.