2. nóvember 2023 kl. 09:00,
í Kjarna
Fundinn sátu
- Árni Jón Sigfússon byggingarfulltrúi
- Þór Sigurþórsson
Fundargerð ritaði
Árni Jón Sigfússon byggingarfulltrúi
Dagskrá fundar
Almenn erindi
1. Akurholt 21 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi202111108
Hans Þór Jensson Akurholti 21 sækir um leyfi til að byggja úr steinsteypu viðbyggingu á einni hæð við einbýlishús á lóðinni Akurholt nr. 21, í samræmi við framlögð gögn. Stækkun: 25,9 m², 82,1 m³.
Vísað til umsagnar skipulagsnefndar og skipulagsfulltrúa þar sem ekki er í gildi deiliskipulag á svæðinu.
2. Bjarkarholt 11-29 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi202111474
A01 ehf. Höfðabakka 3 Reykjavík sækir um leyfi til breytinga áður samþykktra aðaluppdrátta fjölbýlishúss nr. 17-19 á lóðinni Bjarkarholt nr. 11-29, í samræmi við framlögð gögn. Stærðir breytast ekki.
Samþykkt
3. Stórikriki 59 - Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Flokkur 2,202309619
Pallar og menn ehf. Markholti 17 sækja um leyfi til að byggja úr steinsteypu tveggja hæða parhús með innbyggðum bílgeymslum á lóðinni Stórikriki nr. 59-61, í samræmi við framlögð gögn. Stærðir lóð nr. 59 : Íbúð 172,1 m², bílgeymsla 23,8 m², 530,7 m³. Stærðir lóð nr. 61 : Íbúð 177,9 m², bílgeymsla 37,3 m², 521,9 m³.
Samþykkt. Niðurstaða afgreiðslufundar felur í sér samþykkt byggingaráforma í samræmi við 11. gr. laga um mannvirki nr. 160 / 2010. Óheimilt er að hefja framkvæmdir fyrr en byggingarfulltrúi hefur gefið út byggingarleyfi í samræmi við 13. gr. laga um mannvirki nr. 160 / 2010.