23. september 2020 kl. 15:00,
í Kjarna
Fundinn sátu
- Árni Jón Sigfússon byggingarfulltrúi
- Þór Sigurþórsson
Fundargerð ritaði
Árni Jón Sigfússon byggingarfulltrúi
Dagskrá fundar
Almenn erindi
1. Reykjabyggð 53 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi202007143
Kristinn Sigurbjörnsson Reykjabyggð 53 sækir um leyfi til breytinga áður samþykktra aðaluppdrátta einbýlishúss á lóðinni Reykjabyggð nr. 53, í samræmi við framlögð gögn. Stærðir breytast ekki
Samþykkt
2. Súluhöfði 53 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi202007028
Íris Ösp Björnsdóttir Þverholti 29 sækir um leyfi til að byggja úr steinsteypu einbýlishús með innbyggðri bílgeymslu á lóðinni Súluhöfði nr. 53 í samræmi við framlögð gögn. Stærðir: 220,2 m², 50,1 m², 1.189,4 m³.
Byggingarfulltrúi óskar eftir umsögn skipulagsnefndar um erindið þar sem hönnun húss er að hluta til ekki í samræmi við skilmála deiliskipulags.