Hoppa í meginmál
mos.is - Forsíða

13. nóvember 2020 kl. 09:00,
í Kjarna


Fundinn sátu

  • Kristinn Pálsson skipulagsfulltrúi

Fundargerð ritaði

Kristinn Pálsson skipulagsfulltrúi


Dagskrá fundar

Almenn erindi

  • 1. Bjarta­hlíð 25 - um­sókn um stækk­un lóð­ar201805176

    Skipulagsnefnd Mosfellsbæjar samþykkti á 523. fundi nefndarinnar að deilskipulagsbreyting fyrir Björtuhlíð 25 yrði auglýst skv. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Breytingin felur í sér stækkun lóðar til austurs að göngustíg. Tillagan var kynnt með dreifibréfi grenndarkynningar í samræmi við 44. gr. skipulagslaga sem borið var út til íbúa og eða lóðarhafa að Björtuhlíð 15, 17, 19-21, 25 og Hamratanga 12. Athugasemdafrestur var frá 01.10.2020 til og með 02.11.2020. Engar athugasemdir bárust.

    Þar sem eng­ar at­huga­semd­ir bár­ust við til­lög­una, með vís­an í 3. mgr. 41. gr. skipu­lagslaga nr. 123/2010 og af­greiðslu­heim­ild­ir skipu­lags­full­trúa, skoð­ast breyt­ing­in sam­þykkt og mun skipu­lags­full­trúi ann­ast gildis­töku henn­ar skv. 42. gr. skipu­lagslaga.
    Máls­að­ili skal greiða þann kostn­að sem af breyt­ing­unni hlýst.

    Fleira var ekki gert. Fundi slitið kl. 09:15