13. ágúst 2020 kl. 16:15,
2. hæð Helgafell
Fundinn sátu
- Bjartur Steingrímsson formaður
- Kristín Ýr Pálmarsdóttir (KÝP) varaformaður
- Ölvir Karlsson (ÖK) aðalmaður
- Unnar Karl Jónsson aðalmaður
- Michele Rebora (MR) aðalmaður
- Tómas Guðberg Gíslason umhverfissvið
Fundargerð ritaði
Tómas G. Gíslason umhverfisstjóri
Dagskrá fundar
Almenn erindi
1. Umhverfisviðurkenningar Mosfellsbæjar fyrir árið 2020202007357
Farið yfir tilnefningar til umhverfisviðurkenninga Mosfellsbæjar fyrir árið 2020 og farið í vettvangsferð til að skoða fallega garða sem tilnefndir voru til umhverfisviðurkenninga.
Umhverfisnefnd fór í vettvangsferð til að skoða fallega garða sem tilnefndir voru til umhverfisviðurkenninga Mosfellsbæjar árið 2020.
Umhverfisnefnd hefur ákveðið að veita 3 görðum og 1 félagasamtökum umhverfisviðurkenningar ársins 2020 og fylgja upplýsingar um verðlaunahafa með í sérstöku minnisblaði.