10. maí 2022 kl. 13:30,
í Kjarna
Fundinn sátu
- Árni Jón Sigfússon byggingarfulltrúi
- Þór Sigurþórsson
Fundargerð ritaði
Árni Jón Sigfússon byggingarfulltrúi
Dagskrá fundar
Almenn erindi
1. Hagaland 2 - Fyrirspurn til byggingarfulltrúa202105009
Brynjar Elefsen Óskarsson Hagalandi 2 óskar eftir umsögn um áformaða stækkun svala og viðbyggingu neðri hæðar einbýlishúss á lóðinni Hagaland nr. 2, í samræmi við framlögð gögn. Stækkun: Svalir 12,6 m², Íbúð 19,9 m², 55,6 m³.
Byggingarfulltrúi óskar eftir umsögn skipulagsnefndar þar sem ekki er í gildi deiliskipulag á svæðinu.